Skírnir - 01.09.1998, Blaðsíða 250
520
GEIR SVANSSON
SKÍRNIR
Margar skringilegar og skemmtilegar „persónur" verða á vegi Þór-
unnar en tvær þeirra fylgja henni alla leið og hafa það hlutverk að reyna
hana eða freista hennar. Kennslukonan fröken Hrís, eða Sonja Lísa Hrís,
og næturvörðurinn Agúst (sem hefði átt að heita September) eru bæði
haldin óstjórnlegri þrá eftir Þórunni, „útlendingnum" í borginni. Þórunn
er reyndar ástarviðfang flestra sem á vegi hennar verða. Báðum tekst
hvort tveggja að tæla hana og þröngva sér upp á hana. Það er þó til
einskis því að allar samfarir þeirra eru misheppnaðar og kynferðisleg
fullnægja takmörkuð, hvað þá gagnkvæm fullnæging. Sú regla gildir um
allt kynlíf í Dyrunum þröngu. Viðfang þrárinnar, og fullnægingin, færist
í sífellu undan og skorturinn ríkir. Þeir einu sem fá kynlífsþrár sínar
uppfylltar, og vel það, eru ferðafélagar Þórunnar. En það er við hæfi þar
sem þeir eru allir steindauðir! Þráin „uppfyllist" jú bara í dauðanum en
þangað tælir vöntunin okkur.
Ágúst er ágengur og eignar sér Þórunni umsvifalaust, enda með próf
í „skyndiákvörðunum" upp á vasann. Hann þykist eiga allskostar við
Þórunni og slær um sig með ýmsum táknmyndum karlmennskunnar,
svo sem rauða mótorhjólinu sem hann reiðir sig, og Þórunni, á. Þessi
fulltrúi sannrar karlmennsku þykist vita hvað konur vilja og hikar ekki
við að „taka“ Þórunni. Það koma hins vegar vöflur á hann þegar Þórunn
snýr dæminu við og gerir sig líklega til að taka honum eða taka hann. Þá
reynist holdið ekki veikt heldur slappt. Mótleikur Þórunnar, en einnig
tregða hennar til að falla inn í það kvenhlutverk sem henni er ætlað, gref-
ur smám saman undan gervi Ágústs: Á stundum tekur hann á sig ýmis
einkenni sem talin eru eiga við hefðbundið kyngervi konunnar; hann
grætur, fer undan í flæmingi og verður passívur. En þrátt fyrir sprungur
og brotalamir í kyngervi Ágústs heldur hann dauðahaldi í karlmennsku
sína: Hann kann hvorki að gefa né þiggja, bara að taka.
Fröken Sonja Lísa Hrís er við fyrstu sýn ákaflega stöðluð manngerð.
Hún er pipraða, þurra kennslukonan logandi af innri ástríðu sem hún
fær enga útrás fyrir því hún er úrkast gagnkynhneigðrar karlamenningar:
Óbyrja og ófögur samkvæmt staðli. Þórunni finnst samt skrýtið að
borgin „eigi engar lausnir handa [henni] hvað ástina snertir" (59).
Fröken Hrís reynist þó ekki jafn þurrkuntuleg og virðist í fyrstu; varir
hennar minna Þórunni á „kvenkynfæri" og þegar á líður leysir hún af
sem fatafella í „gægjugatahöll“ staðarins. Hún fer líkt að í byriun og
Ágúst og þröngvar sér upp á Þórunni. Ágúst er keppinautur hennar um
blíðu og ást Þórunnar og Sonja Lísa biður hana „örvæntingarfullt“ að
svíkja hann en elska sig. Þórunn tekur það ekki í mál og minnir Sonju á
hjúskaparstöðu sína, á eiginmann sinn og dóttur. Sonja gefst þó ekki upp