Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Síða 5

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Síða 5
H o m o i s l a n d i c u s – i n n a ð b e i n i TMM 2012 · 2 5 því félagslega minni sem þau birta, hvernig fortíðin er staðfest og varðveitt (Connerton 1989). „Þankagangur“ (Denkstil) fræðanna er hugtak sem á rætur í skrifum Ludwiks Fleck (1979) og hann er sprottinn úr fjölbreyttum jarðvegi, í honum sameinast heimasprottnar hugmyndir og aðfengnar, sumt er þar mótað af þjóðernishyggju, annað úr fræðasamfélaginu. Þankagangur fræðanna tekur hins vegar á sig ólíkar myndir hvað varðar aðferðafræði og heimildir, og aðalgögnin eru ýmist textar, bein eða DNA. Samkvæmt Fleck fylgja nýjum „stíl“ hvörf í fræðilegum áhuga (1979:142). Þegar nýr þankagangur kemur fram, halda fylgjendur hans því sigurvissir fram að þeir hafi öðlast sérstakan aðgang að fortíðinni. Þankagangurinn mótar fræðasamfélagið, ákveður hvers skal spyrja, hvers konar kenningar eru teknar gildar, hvaða aðferðum skal beita og hvers konar gögn skipta máli. Í samhengi við umfjöllunarefnið hér, þar sem mannabein eru í aðalhlut- verki, er skemmtilegt að Fleck notar einmitt „anatómíu“ til að skýra mál sitt (1979:133). En „þankagangur“ verður ekki til úr engu, eins og Fleck bendir á, hann er afsprengi þess umhverfis sem hann verður til í, bæði er hann skap- aður af og skapar ímyndað samfélag (Anderson 1983) þjóða, menningar- heilda og fræðigreina og hefðir þeirra um minni og vald. Ímyndað samfélag Íslendinga Samkvæmt opinberu sögunni sem okkur er kennd hófst landnám Íslands árið 874, aðallega af norrænnum mönnum, þó einhverjum frá Bretlandseyjum. Sumar rannsóknir á síðustu árum benda þó til þess að menn hafi numið hér land töluvert fyrr (Ahronson 2012). Ef svo er beið norrænu landnemanna ekki autt landslagið, þvert á ríkjandi skoðun á liðnum öldum. Við vitum líka að norrænir menn, bæði frá Íslandi og Noregi, héldu lengra í vestur og dvöldu til lengri tíma á Grænlandi og í Norður-Ameríku (Sutherland 2000). Nýleg erfðafræðirannsókn bendir til þess að rekja megi einn ættlegg hvatbera (mtDNA) sem finnst í Íslendingum í dag, aftur til landnáms Ameríku fyrir þúsundum ára og líklegasta skýringin á þeirri ráðgátu sé að ein kona, að minnsta kosti, úr hópi frumbyggja Norður Ameríku hafi komið til Íslands á landnámstímanum (Sigríður Sunna Ebenesersdótttir o.fl. 2011). Eins og þekkt er þá mörkuðu endalok þjóðveldisins upphaf yfirráða ann - arra þjóða sem stóðu um aldir, fyrst Noregs en svo Danmerkur, sem fékk Ísland með í kaupunum þegar Danmörk tók yfir Noreg. Nýlenduherrarnir fólu Íslendingum að leika hlutverk forfeðra norrænnar siðmenningar. Í augum Svía og Norðmanna voru fornbókmenntirnar norsk sköpun og tilviljun ein réð því að þær voru skráðar og tímabundið varðveittar á Íslandi af norskum útflytjendum. Þýskir þjóðernissinnar aðhylltust svipaðar hugmyndir, og lögðu áherslu á germanskar rætur sagnanna og fléttuðu þeim saman við sinn þjóðlega arf. Síðar byggðu Íslendingar kröfu sína um sjálfstæði með skír- skotun í þann arf sem birtist í tungumálinu og bókmenntunum. Íslendingar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.