Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Side 12

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Side 12
G í s l i Pá l s s o n o g S i g u r ð u r Ö r n G u ð b j ö r n s s o n 12 TMM 2012 · 2 sem var framarlega í flokki líkamsmannfræðinga í Bandaríkjunum. Hoo- ton gagnrýndi síðar líkamsmannfræði nasista, en hins vegar fjármagnaði hann rannsóknir undir áhrifum kynþáttahyggju (Barkan 1988:186, Marks 2008:244). Í einni af bókum sínum, Up from the apes, sem kom fyrst út árið 1931, fjallar hann um „blóðflæði kynþáttanna“ (blood stream of human races), um framrás tegundarinnar og aðgreiningu kynþátta frá villimennsku til siðmenningar (Hooton 1946). Blóðtengslin sem Hooton gerir ráð fyrir endurspegla kynþáttahugmyndir hans. Norrænir menn voru í hans augum bæði nokkuð hreinn stofn og háþróaður en „mongólískar“ þjóðir, þar á meðal inúítar, ráku lestina. Hooton, líkt og aðrir líkamsmannfræðingar á hans tíma, leit á bein sem besta vitnisburðinn um breytileika mannsins. Mæling og flokkun beina varð ástríða, sem birtist vel í beinasafni Peabody-stofnunarinnar við Harvardháskóla. Þar er um að ræða umtalsvert safn mannabeina frá öllum heimshornum, eins konar allsherjarþing fyrri tíma, varðveitt í hundruðum pappakassa merktum fólki og stöðum: „Bóhemía“, „Íslendingar“ o.s.frv. (Gísli Pálsson 2003:76). Undir sterkum áhrifum af mannfræði Hootons, varð Vilhjálmur nákvæmur skrásetjari hvers kyns líkamsmælinga. Í dagbókum hans má sjá að inúítar hafi oft verið tregir til að láta mæla sig og stundum krafist borgunar. Þetta varpar ljósi á starfshætti og aðstæður Vilhjálms, blendin viðbrögð þeirra sem eru rannsakaðir og ójafnvægið í sambandi þess sem rannsakar og þess sem er rannsakaður. Nálgun Vilhjálms er dæmigerð fyrir það sem tíðkaðist á tímum nýlendumannfræðinnar. Heimskautasvæðið og þjóðir þess átti að kortleggja, skrásetja – og stjórna. Fyrir leiðangra sína á heimskautasvæðið tók Vilhjálmur þátt í forn- leifaleiðangri til Íslands. Árið 1905 var hann skipaður aðstoðarmaður við Harvardháskóla, sem sérfræðingur deildarinnar í heimskautasvæðum. Sama ár ferðaðist hann til Íslands með hópi landfræðinga og kollega úr mann- fræðinni. Mannfræðingarnir unnu að uppgreftri á beinum úr kirkjugörðum frá miðöldum. Upphaflega var tilgangurinn að grafast fyrir um samband mataræðis og heilsu á miðöldum, en fljótlega vöktu beinin ýmsar spurningar um uppruna landsmanna og samanburð við aðrar þjóðir (Seltzer 1933). Í grein sem birtist í American Journal of Physical Anthropology segir Hooton áberandi hversu íslensku beinin séu lík beinum eskimóa (1918:53). Þótt Hoo- ton greini ákveðin líkamleg líkindi með Íslendingum og eskimóum, segir hann það ekki endilega erfðafræðilega ákvarðað, líklegra, segir hann, að um sé að ræða „líffræðilega aðlögun að svipuðu mataræði og umhverfi“ á norðurslóðum (1918:74).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.