Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 29

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 29
H v í t i g e l d i n g u r i n n TMM 2012 · 2 29 Geldingnum var frjálst að eiga öll þau samskipti sem hann lysti við þessar stúlkur og stundum sat hann hjá þeim í skuggunum og hlustaði á samræður þeirra um karlmenn, fyrra líf þeirra og hvað framtíðin bæri í skauti sér. Að nokkrum mánuðum liðnum var hann farinn að skilja og tala arabísku. En hann þreyttist auðveldlega á því að tala, tungan þykknaði og dofnaði uppi í honum og kjálkinn seig. Á slíkum stundum fannst honum líkt og andlit hans yrði hola sem hver sem er gæti gengið inn í og svívirt hann á hvaða hátt sem væri, en það gerðist ekki – ekki á daginn að minnsta kosti. Sam- komulag hans og stúlknanna var gott, enda stóð þeim ekkert annað til boða. Þó að kerlingin sem hafði kynnt fyrir honum starfið í garðinum væri yfirleitt hvergi sjáanleg var eins og hún vissi af öllu sem þar færi fram. Einu sinni á dag, yfirleitt á morgnana, afhenti hún honum skipanir dagsins og tók þær kvennanna á eintal sem var álitið að hefðu brotið af sér. Stöku sinnum kom fyrir að útdeilt var refsingum. Í eitt skipti voru fjórar kvennanna sem höfðu átt í illdeilum hver við aðra flengdar af geldingnum – sem hlýddi því sem honum var sagt að gera. Þegar húðin sprakk og þeim byrjaði að blæða var honum skipað að hætta. Í annað skipti var sýrlensk stúlka sem hafði neitað að hlýða bundin nakin við jörðina undir brennandi hádegissól, skapabarm- arnir teygðir í sundur og festir með klemmum við nárann, látnir stikna þar til blöðrur lokuðu rifunni á henni. Auk hinnar kvenlegu nærveru hafði Finnur stundum félagsskap af öðrum geldingi sem var rússneskur en þó hvorugur af Rússunum tveimur sem höfðu orðið honum samferða frá Ítalíu. Rússinn hét Momir Stechkin, kall- aður Mom, og var hávaxinn og ljóshærður eins og Finnur; hann hafði dvalið alla sína ævi í Moskvu þar til hann þáði boð vingjarnlegs araba um hótel- starf í Saudi Arabíu. Þar var hann seldur á markaði til höfðingja bedúína. Í eyðimörkinni dvaldi hann í þrjú ár við svipaðar aðstæður og Finnur, vakti þá athygli soldánsins í Sanaa sem keypti hann. Starf hans var í öðrum hluta byggingarinnar, á efstu hæð, þar sem hann sagði að væri annar garður, áþekkur hinum en minni, og tvær lúxus-íbúðir þar sem gistu bandarísk og belgísk stúlka sem ólíkt stúlkunum þarna niðri væru sjálfviljugar í þjónustu sinni og gætu yfirgefið búrið að vild, en ekki landið; þær hefðu gifst sonum soldánsins fyrir fé, og að nokkrum árum liðnum myndu þeir sækja um skilnað og fara aftur heim til sín með peninga sem dygðu þeim út ævina. – Ríkum múslimum þætti eftirsóknarvert að geta látið sjá sig með hvítum konum, gáfuðum og hæfum í samskiptum, en ekki ómenntuðum bændadætrum eins og oftast væri raunin með stúlkurnar í garði Finns. Mom útskýrði líka fyrir honum þrælaverslun Mið-Austurlanda með hvítingja, yfirleitt ljóshærða og bláeyga og yfirleitt frá fyrrum Sovétríkjunum þar sem útsendarar leituðu þá uppi á götunni – heimilislausa aumingja sem enginn myndi sakna þegar þeir hyrfu. Í hverjum mánuði væru hátt í fimm þúsund konur og karlar seld á leynilegum þrælamörkuðum í eyðimörkinni. Verð fyrir fullorðinn hvítan karl væri yfirleitt á bilinu fimm hundruð til tíu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.