Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 40
40 TMM 2012 · 2
Árni Finnsson
Íslensk stjórnvöld og
umhverfisverndarsamtök
– frá Ríó til Ríó
Dagana 20.–22. júní verður haldin ráðstefna á vegum Sameinuðu þjóðanna,
Ríó +20, en þá verða liðin 20 ár frá Ríó-ráðstefnunni um umhverfi og
þróun. Enn er óljóst hvort þjóðarleiðtogar sæki ráðstefnuna, enda forðast
þeir alþjóðlegar ráðstefnur er gætu leitt til niðurstöðu sem væri langt undir
væntingum, sbr. Kaupmannahafnarráðstefnuna í desember 2009. Ekki bætir
úr skák að þemu Ríó +20 hafa þótt heldur óspennandi fyrir stjórnmálamenn
sem vilja láta til sín taka í sviðsljósi alþjóðlegra fjölmiðla.
Til þess að auka aðsókn þjóðarleiðtoga – og þar með pólitískt vægi Ríó
+20 – hafa augu manna beinst að lífríki hafsins – hinu bláa hagkerfi – sem
er ógnað vegna rányrkju, eyðingu kórala og annarra mikilvægra uppeldis-
stöðva fyrir fisk, að viðbættri eyðileggingu strandsvæða og súrnun sjávar í
kjölfar hnattrænnar hlýnunar.1
Sú hugmynd að verndun hafsins verði eitt af helstu þemum Ríó +20
nýtur vaxandi stuðnings. Hvort hún dugir til að laða að þjóðarleiðtoga er
óvíst á þessu stigi máls, en fyrir 20 árum sóttu 120 þjóðarleiðtogar ráð-
stefnuna í Ríó. Hvað Ísland varðar er ljóst að enginn forsætisráðherra í sögu
lýðveldisins hefur fjallað jafn vandlega um umhverfismál í áramótaávarpi
sínu og Jóhanna Sigurðardóttir gerði sl. gamlárskvöld. Borið saman við árið
1992 hefur málflutningur íslenskra stjórnvalda gjörbreyst.2
Afstaða og stefna íslenskra stjórnvalda gagnvart umhverfisverndar-
samtökum hefur tekið afgerandi breytingum frá því fyrir 20 árum. Þær
breytingar voru staðfestar í fyrra þegar Alþingi fullgilti Árósasamninginn
um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang
að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum.3
Í tillögum Íslands um hverjar skuli vera helstu áherslur lokaplaggs Ríó
+20 – fyrsta uppkast að niðurstöðu Ríó +20 – er lögð rík áhersla á mikilvægi
þess að stjórnvöld eigi gott samstarf við frjáls félagasamtök (civil society)
og að samstarf stjórnvalda við samtök almennings verði eflt, í samræmi
við áherslur Dagskrár 21 og þá Framkvæmdaáætlun sem samþykkt var í
Jóhannesarborg árið 2002 og kvað á um, í lauslegri þýðingu: