Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Blaðsíða 46
Á r n i F i n n s s o n
46 TMM 2012 · 2
Á sama tíma og íslensk stjórnvöld vöruðu ákaft við framgangi umhverfis-
verndarsamtaka settu menn í gír og stefndu á að Ísland yrði forystuþjóð um
nýtingu endurnýjanlegrar orku. En til þess að slæva aðeins stóriðjubrodd-
inn var kúrsinn settur á forystusæti í heiminum við nýtingu vetnis til að
knýja bifreiðar.27 Íslensk stjórnvöld hafa nú viðurkennt að vera eftirbátur
nágrannaríkjanna hvað varðar nýtingu á endurnýjanlegu og/eða minna
mengandi eldsneyti fyrir bifreiðar. Vetnisútrásin mistókst.28
Í viðtali við fréttamann Ríkisútvarpsins, Jón Guðna Kristjánsson, þann
10. maí 1997 lýstu Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra og Jón Baldvin
Hannibalsson, f.v. utanríkisráðherra, skelfingu sinni yfir framgöngu
umhverfis verndarsamtaka sem með aðgerðum sínum vildu knýja alþjóða-
stofnanir til að hlutast til um nýtingu fiskstofna og notkun veiðarfæra. Í
blaðagrein ári síðar skýrði Halldór Ásgrímsson afstöðu sína með eftirfarandi
hætti:
Á undanförnum árum hafa Íslendingar orðið þess áþreifanlega varir í hvalamálum
og loftslagsmálum, að ekki er hægt að ganga að því vísu að umræður um sjálfbæra
þróun í alþjóðlegu samhengi taki ýtrasta tillit til sjálfbærrar þróunar í hinu íslenska
samfélagi.29
Hér er tengingin við hvalveiðideiluna orðin mun víðtækari en nýting
auðlinda sjávar. Umhverfisverndarsamtök – bæði heima og erlendis – höfðu
gagnrýnt að ótæpileg losun gróðurhúsalofttegunda frá álverum stæðist ekki
alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. Íslensk stjórnvöld unnu að því hörðum
höndum að afla undanþágu frá Kyoto-bókuninni sem gerð var í desember
árið áður.
Í ræðu á aðalfundi Vinnuveitendasambands Íslands (nú Samtökum
atvinnu lífsins) þann 7. maí 1998 skýrði Halldór Ásgrímsson afstöðu Íslands
nánar og sagði:
Við getum í reynd staðið frammi fyrir því að geta ekki nýtt fallvötn okkar og jafnvel
ekki fiskimið vegna þrýstings á alþjóðavettvangi í nafni umhverfisverndar. Er það
umhverfisvernd í augum þjóðar sem á allt sitt undir endurnýjanlegum auðlindum og
hefur í ellefu hundruð ár lifað í betri sátt við umhverfi sitt en flestar aðrar þjóðir?30
Ekki er unnt að finna skynsamlega skýringu á því hvernig utanríkisráðherra
gat komist að þessari niðurstöðu. Kristjáni Loftssyni, eiganda Hvals hf., má
e.t.v. vera nokkur vorkunn að halda því fram að næst á eftir hvalveiðum
hyggist umhverfisverndarsamtök stöðva fiskveiðar. Hann rekur áróður fyrir
sérhagsmunum. En utanríkisráðherra á að tala fyrir þjóðarhagsmunum og
hefur að baki sér her diplómata og sérfræðinga til þess að vinna að lang-
tímastefnu. Hitt er mýta að Íslendingar hafi í „… ellefu hundruð ár lifað í
betri sátt við umhverfi sitt en flestar aðrar þjóðir.“
Í stefnuræðu sinni á Alþingi þann 4. október 1999 veittist Davíð Oddsson
harkalega að umhverfisverndarsamtökum fyrir gagnrýni þeirra á loftslags-