Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 50
Á r n i F i n n s s o n
50 TMM 2012 · 2
ríkja sem heitið höfðu stuðningi við tillögu og málflutning Íslands, enda
höfðu íslenskir embættismenn leitað stuðnings víða við þessa tillögu.42
Fimm árum síðar breytti Ísland afstöðu sinni, enda áhrifalaust og einangrað
í umræðu um mat á ástandi lífríkis sjávar.43
Verstu útreiðina fékk Ísland í kjölfar 61. allsherjarþings Sameinuðu
þjóðanna haustið 2006. Ísland kom þá í veg fyrir samþykki tillögu um
tímabundið bann (moratorium) við botnvörpuveiðum á alþjóðlegu hafsvæði
sem valda eyðileggingu á viðkvæmum vistkerfum eins og kóröllum á hafs-
botni og í úthlíðum sjávartinda. Var afstaða Íslanda harðlega gagnrýnd í
leiðara Washington Post.44
Í fyrsta uppkasti að lokayfirlýsingu Ríó +20 er málsgrein sem mjög svipar
til þeirrar tillögu sem Ísland lagði fram 2002 og hafnaði 2004.
79. We endorse the Regular Process for the Global Marine Assessment as a credible,
robust process, and support the completion of its first global integrated assessment
of the state of the marine environment by 2014. We call for consideration of assess-
ment findings in formulation of national, regional and global oceans policy.45
Upphafleg tillaga Íslands var betri en ráðamenn gerðu sér grein fyrir.
Niðurlag
Erfitt er að skýra það hagsmunamat sem lá að baki málflutningi íslenskra
stjórnvalda á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Staðreyndin er hins vegar sú
að verndun líffræðilegs fjölbreytileika, samstarf gegn mengun, alþjóðlegt
samstarf um verndun og nýtingu auðlinda sjávar vék iðulega fyrir hug-
myndafræðilegri baráttu stjórnvalda gegn málflutningi – jafnvel ímynd-
uðum málflutningi – umhverfisverndarsamtaka.
Hér hefur verið dregið fram að um alllangt skeið stóðu íslensk stjórnvöld
fyrir eins konar herferð gegn umhverfisverndarsamtökum á alþjóðavett-
vangi. Nú ber hins vegar að fagna skýrri og afgerandi stefnubreytingu
Íslands gagnvart frjálsum félagasamtökum/umhverfisverndarsamtökum.
Þessi stefnubreyting mun vafalaust auðvelda nauðsynlega viðhorfsbreytingu
í málefnum hafsins, til að mynda hvað varðar verndun viðkvæmra svæða í
djúpum úthafanna fyrir veiðum með botnvörpu, svo eitthvað sé nefnt.
Tilvísanir
1 High Seas Alliance Briefing: http://highseasalliance.org/pdfs/HSA-Briefing-may11.pdf. Vef-
síða sótt 20. janúar 2012.
2 Fréttaskýrendur myndu væntanlega gera því skóna að um sé að ræða áherslur ríkisstjórnar-
innar fremur en persónulegt framtak forsætisráðherrans.
3 Aarhus Convention Membership reaches 45: Iceland ratifies far-reaching environmental rights
treaty
Sjá: http://www.unece.org/env/pp/news.html. Vef síða sótt 19. janúar 2012.