Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 86

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 86
86 TMM 2012 · 2 Sigurður Pálsson Ritunarsaga Utan gátta Utan gátta (í tveimur orðum) var frumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu 24. október hrunhaustið 2008. Það er ellefta leikrit eftir mig sem er sviðsett. Ég hef verið leikritahöfundur alveg jafn lengi og ljóðskáld. Reyndar þýðandi líka. Þetta þrennt, leikskáld, ljóðskáld og þýðandi hef ég semsé verið opinberlega síðan 1975, þ.e. ég hef birt ljóð í bók síðan þá, leikverk hafa verið leikin og þýðingar birst eða verið leiknar. Prósaverk fóru svo að birtast seint og um síðir, bæði skáldsögur og endurminningaverk. Ljóð, prósi, leikrit, þessi ritunarsvið eru innbyrðis furðulega ólík, hvert þeirra þarfnast sérstakrar innstillingar, aðferðar, skriftastrategíu. Auk þess er mín reynsla sú að ekki er það sama að skrifa leikrit og leik- rit. Hvert einasta þeirra leikrita sem sett hafa verið upp eftir mig, hvert þeirra hefur átt sér sinn prófíl, sínar forsendur, sína sérstöku sköpunar- eða ritunarsögu. Og hér ætla ég semsé að greina frá ritunarsögu Utan gátta. Þetta verk á sér langa sögu. Öll sköpun er umbreytingar, ummyndanir, myndbreytingar. Þess vegna skulum við óhrædd nota myndlíkingar úr garðrækt eða skógrækt. Fræ. Kím. Sproti. Ég vel þessar líkingar ekki vegna þess að þær séu fallegar heldur vegna þess að þær segja einhvern sannleika sem annars tæki lengri tíma að segja. Myndlíkingar eru að mínu mati ekki til skrauts, aldrei, þær eru tæki til þess að hjálpa okkur að hugsa. Fyrsta fræinu var sáð 1983. Það tengist leikritinu Miðjarðarför sem ég skrifaði fyrir Nemendaleikhúsið. Hallmar Sigurðsson leikstýrði, leikmynd gerði Gretar Reynisson, eitt af fyrstu verkefnum hans í leikhúsi. Leikritið hét fullu nafni Miðjarðarför eða innan og utan við þröskuldinn. Og hvaða þröskuldur er þetta sem kemur fram í titlinum? Það er þröskuldurinn milli unglingsára og fullorðinsára. Aðalpersónurnar sjö ungmenni (jafnmörg leikurunum í hópnum), sem eru að máta sig við hina nýju fullorðinstilveru, prófa sig áfram með ást, langanir, takast á við foreldravaldið, láta sig dreyma um framtíðina, prófa sig áfram með tilfinn- ingar og hlutverk. Áttunda persónan er ekki lengur í hópnum, hann er fjarverandi aðal-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.