Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 88

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 88
S i g u r ð u r Pá l s s o n 88 TMM 2012 · 2 þannig að úr varð að fá að láni úr Miðjarðarför einn smákafla með utan- gáttaleikverum. Það hefur semsé alltaf verið þráhyggja mín að nota einhvers konar kór eða ígildi kórs í leikverk. Búa til díalektík meginefnis og spássíu. Í Miðjarðarför voru utangáttaleikverur kórinn, í verkinu Utan gátta voru þær aðalleikverurnar (eða persónurnar) tvær. En hvar er þá kór-elementið í Utan gátta? Ja, það þróaðist í persónu sem við sjáum aldrei og ég kallaði MC eða Master of Ceremonies. Þetta er utanaðkomandi afl sem stjórnar þessum innilokaða heimi, hreyfir stundum veggi, kveikir ljósið, slekkur ljósið, sendir inn tónlist, sendir inn allsnægtaborð, býr til jarðskjálfta og svo framvegis. MC er í raun leikhúsið sem leikur sér að leikbrúðunum, stjórnar þeim eins og nokkurs konar guð. Við vitum ekki hvernig þetta byrjaði. Það eru fjöldamörg ár síðan ég skrifaði fyrstu textana sem enduðu í leik- verkinu Utan gátta, sirka 8 eða 9 ár. Smám saman varð til sérskúffa eða skjal sem merkt var Utan gátta. Hvernig vissi ég að texti sem ég var að skrifa ætti heima þar? Ég vissi það vegna þess að þetta voru alltaf tvær raddir, aldrei ein rödd, aldrei þrjár eða fleiri, alltaf tvær, aldrei önnur sitúasjón en þessi: tvær raddir sem voru í spenntum tengslum, oft í deilum, gjarnan að reyna fá botn í eitthvað af veikum mætti. Sjá aldrei stóra samhengið, fastar í eigin litla sjónarhorni. Þessa texta skrifaði ég með sömu ritunar-orku, ef svo má segja. Skrifaði aldrei nema að finna fyrir knýjandi rit-þörf, rit-orku, krafti, upptendrun, löngun til sköpunar. Oft upp úr millibilsástandi milli svefns og vöku. Eða þá seint á kvöldin þegar ég var svo þreyttur að ég gat ekkert sensúrerað. Strax og ég fann ekki lengur fyrir þessum drifkrafti hætti ég. Það var alltaf kraftur og löngun sem knúði áfram díalóginn, af því að þetta var alltaf día-lóg, alltaf tvær raddir. Sama heildarorkan, en innan hverrar til- tölulega sjálfstæðrar einingar er sama tilfinning, sama orka. Þannig skrifaði ég í gegnum tíðina afmarkaðar heildir, lítil brot, litlar mósaík-einingar. Svo strikaði ég út og snyrti. Og þá var eftir kjarni, eining, sem var afar erfitt að breyta. Eining sem er sérkennilega erfitt að brjóta upp. Mér var alls ekki ljóst hvað ég gæti gert við þetta materíal. Ég kom mér upp aðferð til að grisja staflann. Aðferðin byggðist eiginlega á því að henda öllu sem mér fannst ég skilja á auðveldan hátt, allt sem var augljóst, alla þá texta sem gáfu upp merkingu sína fljótlega og baráttulaust. Í stuttu máli allt sem vinstra heilahvelið hafði skrifað. Þá voru eftir textar sem ég gat ómögulega hent vegna þess að það var eitt- hvað í þeim sem heillaði mig, gerði mig forvitinn, ögraði skilningi mínum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.