Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Side 107

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Side 107
K æ r i E r l e n d u r TMM 2012 · 2 107 Rittregðan kann að eiga sér skýringu. Í bréfi vestur um haf til Nínu, dagsettu 17.11. 1944, segir Erlendur: „Eg hef legið alllengi veikur og er nýfarinn að skreiðast á fætur. Það er sami sjúkdómurinn og ég hafði í árs- byrjun 1940 nema miklu vægari. Hann þótti svo skrýtinn og skemmtilegur að það var skrifað um hann í Læknablaðið þó ég hafi aldrei lesið það. Þá missti ég jafnvægisskynjunina, sá allt tvöfalt, og tilfinninguna í hálfum líkamanum. Nú missti ég aðeins tilfinningu hægra megin, aðallega í hendi og fæti. Ég get ekki skrifað með penna, þess vegna færðu þetta vélritað. Ég á að vera sem mest á gangi úti og mér lofað bata á nokkrum mánuðum.“ Erlendur lést 13. febrúar 1947, tæpum þremur árum eftir að hann skrifaði þessi tilgreindu orð. Kalunka, kallaði Laxness þá menn sem hann vænti helst af að legðu sér til fé fyrir milligöngu Erlendar á þeim tíma sem hér um ræðir (karl hlunka – kalmúka – karlmunka eða hvernig sem orðið er myndað, það fylgir ekki sögunni, en kemur tvisvar fyrir í bréfunum með óyggjandi hætti og er ekki verra gæluyrði en hver önnur). Erlendur átti oft erindi við slíka menn fyrir Halldór Guðjónsson frá Laxnesi, sem fyrir milligöngu hans lengdi nafn sitt í Halldór Kiljan Laxness í upphafi bréfasendinganna árin 1924–29, svo ekki þyrfti að heita „Mr. Guðjónsson“ erlendis. Nafnaukinn var um það bil að öðlast opinbera skráningu með aðstoð Erlendar á þeim tíma sem Halldór kom sér fyrir í bænum Taormina á Sikiley vorið 1925 til að skrifa Vefarann. Bréfin frá Laxness vitna með sínum hætti um helsta einkenni Erlendar, greiðasemina, sem fyrir honum var höfð á uppvaxtarárunum í heimahúsum hans og ein- kenndi móður hans. Ekki annað að sjá en faðir hans hafi verið hinn vænsti maður líka. Faðirinn, Guðmundur Jónsson lyfjasveinn í Reykjavíkurapóteki, dó þegar Erlendur var á barnsaldri. Una Gísladóttir lést 1925, þegar Erlendur 32 ára gamall. Hún hafði þá um margra ára skeið rekið veitingasölu og gisti- heimili í húsi sínu Garðastræti 18 og frá upphafi rekstrarins haft á sér það orð að gera ekki upp á milli gesta og selja viðurgerninginn ódýrt. Af því leiddi að til hennar safnaðist fólk sem átti sér óvisst athvarf af ýmsum ástæðum, vegna sérþarfa, svo sem óreglu eða listræns metnaðar sem sat fyrir öðru. Jafnvel eingöngu vegna fátæktar. Erlendur var yngstur fimm systkina sem öll létust ung nema hann. Við lát móðurinnar 1925 tók hann við rekstrinum sem þá hafði fengið á sig fastskorðaða mynd. Hvað sem kann að líða annálaðri greiðasemi Erlendar var hann veitinga- maður og starfaði sem slíkur og ef til vill ekki ástæða til að upphefja þjónustulund hans á hærra stig en sem því nemur, þótt Laxness hafi gert það m.a. í Skáldatíma. Þar hefur skáldið eftir Erlendi þau ummæli að hann myndi leggja þeim manni til fé, ef hann gæti, sem til hans leitaði með þeim orðum, að hann ætlaði sér að nota það til að fyrirfara sér, en myndi setja mörkin við það, ef tilgangurinn væri að drepa annan mann og myndi þá vísa manninum annað.2 Laxness telur þetta visku. Á sama tíma og þessir tveir menn áttu mest saman að sælda voru úti í heimi margir nafnkunnir hugs-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.