Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 121

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 121
Á d r e p u r TMM 2012 · 2 121 Afdrifaríkasta ágreiningsefnið eftir bylt- inguna 1917 og lok borgarastríðsins 1920 var hvort láta skyldi kapítalismann renna sitt skeið í þróun hins frumstæða rússneska samfélags eins og kenningar Karls Marx gerðu ráð fyrir eða hvort reynt skyldi að hlaupa yfir hann. Fyrsti foringi flokksins, Lenín, lamaðist og dó áður en þetta mál var á enda kljáð, en Stalín, arftaki hans og hópur í kringum hann fékk því ráðið að hinu kapítalíska þróunarstigi skyldi sleppt og stefnt að ‘sósíalisma’ í einu landi. Til þess að fá þessum and-marxisma framgengt létu þeir drepa eða fangelsa helstu keppi- nauta sína, meðal þeirra sósíaldemó- krata og hugsjónakommúnista. Þessi harðsvíraða valdaklíka, sem eftir stóð og var í reynd ný yfirstétt, minnir tals- vert á hið ‘asíska’ stjórnarfar sem ríkt hafði í Rússlandi frá því á miðöldum. Hún hélt áfram að berast á banaspjót þar til allt hrundi eftir sjö áratugi. Litlu áður var samt því líkast sem einskonar helfró gripi um sig í Sovétríkjunum með skammri tilkomu Míhaíls Gorbatsjofs. Valdaklíkan, sem í skammsýni sinni ákvað að hlaupa yfir kapítalismann, leyfði að sjálfsögðu ekki erlendum kap- ítalistum að nýta auðlindir hins víð- lenda ríkis. Hún vildi sitja að þeim sjálf. Fyrir bragðið ávann hún sér fjandskap kapítalískra ríkja og óttaðist með réttu eða röngu innrás úr þeirri átt. Erlendir herir höfðu vissulega þegar barist gegn byltingarmönnum á árunum 1918–20. Því fannst þeim ríða á að afla sér stuðn- ings gegn slíkri hættu. Hans var helst að leita meðal verkalýðs og sósíalista á Vesturlöndum sem margir hverjir treystu því lengi vel að hin ungu Sovét- ríki stefndu í átt að sósíalisma og gætu orðið bakhjarl þeirra. Ráðamenn í Sov- étinu spöruðu ekki heldur viðleitni til að kynda undir því viðhorfi. Einn liður í þeirri innrætingu voru skipulagðar boðsferðir til handa vinstri sinnuðum forystumönnum og lista- mönnum að vestan þar sem að sjálf- sögðu var ekki sýnt annað en það sem jákvætt mátti teljast, en örðugt að sjá sig mikið um á eigin spýtur. Nóg var að skoða í stuttri heimsókn í þessu fjöl- menna og víðlenda ríki undir upplýs- andi leiðsögn. Og það tókst furðu lengi að dylja það sem miður fór þrátt fyrir ýmsar ískyggilegar fréttir sem bárust að austan. En þær birtust reyndar aðallega í málgögnum, sem vestrænn verkalýður þekkti öðru fremur að vilhöllum og brengluðum frásögnum af verkalýðsbar- áttunni heimafyrir. Af slíkum verkfalls- fréttum er til dæmis orðið ‘Morgun- blaðslygi’ upphaflega sprottið í íslensk- um fjölmiðlum. Það er á hinn bóginn vægast sagt álitamál að réttlætanlegt sé að kalla skipulagið í Sovétríkjunum kommún- isma. Það samræmist í fyrsta lagi ekki upphaflegum hugmyndum þeirra Marx og Engels. Nafni bolsévikaflokksins var að vísu breytt í ‘Kommúnistaflokk Ráð- stjórnarríkjanna’ árið 1923 og trúlega hafa höfundar nafnbreytingarinnar litið á kommúnisma sem lokatakmark í fjar- lægri framtíð. Sjálfir gengu sovétmenn þó sjaldan lengra en að segjast vera ‘á leið til sósíalisma’. Það voru öðrum fremur andstæðingar kommúnista á Vesturlöndum sem töldu sér henta að gefa þetta nafn ýmsum óskapnaði sem fréttir bárust af í Sovétríkjunum í þeim tilgangi að sverta baráttu kommúnista heimafyrir. En því verður ekki heldur neitað að fjölmargir kommúnistar á Vesturlöndum trúðu því lengi vel í ein- lægni að í Sovétríkjunum væri sannur kommúnismi í framkvæmd. Komintern Það er mikill misskilningur að Alþjóða- samband kommúnista (Komintern) hafi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.