Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 122

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2012, Page 122
Á d r e p u r 122 TMM 2012 · 2 frá upphafi átt að vera valdatæki í hönd- um Sovétríkjanna eins og Hannes Hólmsteinn heldur fram. Þetta var raunar þriðja atlagan frá 1864 að því að skipuleggja alþjóðasamband sósíalískra verkalýðsflokka. Það átti í öndverðu að stuðla að alþýðubyltingu um heim allan einsog Trotskí vildi áfram stefna að. Kommúnistar úr öllum áttum töldu sig í fyrstu hafa sitt af hverju til málanna að leggja á þingum sambandsins til jafns við rússneska félaga sína. Að sjálfsögðu var sambandinu líka ætlað að standa alþjóðlegan vörð um ‘hið unga ríki verkalýðsins’ og styrkja það eftir mætti einsog birtist til dæmis í því grátbros- lega átaki um 1930 þegar íslenskt verka- fólk safnaði fyrir einum traktor handa sovéskum bændum. Jafnframt var stjórn sambandsins ætlað að veita öllum verkalýð hollráð í baráttunni fyrir bætt- um kjörum á þeirra eigin heimaslóð og í því skyni voru meðal annars tveir skólar starfræktir í Moskvu um áratug uns þeim var lokað 1938. Síðastnefnda atriðið varð að sjálf- sögðu lítið annað en nafnið tómt, því stjórn alþjóðasambandsins gat varla haft hundsvit á aðstæðum í hverju landi fyrir sig. Hún hlaut því að fara að mestu eftir lýsingum og tillögum heimamanna, en eftir reglum sambandsins þurfti stjórn þess vitaskuld að samþykkja þær form- lega fyrir sitt leyti. Þetta gat stundum orðið nokkuð snúið, þegar menn voru ekki sammála heimafyrir, einsog kátlega sást í ‘réttlínustandinu’ á Íslandi árin 1932–34. Hitt atriðið, að halda uppi vörnum fyrir Sovétríkin í stað þess að stuðla að heimsbyltingu, varð smám saman aðal- atriðið í stefnu Komintern eftir því sem Stalínsklíkan náði meiri tökum á sam- bandinu. Alþjóðasinnuðum kommún- istum innan þess var útrýmt hverjum á fætur öðrum. Í samræmi við þetta var sovéthollum kommúnistum skipað að berjast gegn öðrum sósíalískum hreyf- ingum. Þetta spilaði á fjórða áratugnum upp í hendurnar á bæði Hitler í Þýska- landi og Franco á Spáni. Í raun varð Komintern algerlega máttlaust eftir rétt- arhöldin miklu 1938, uns það var form- lega lagt niður árið 1943. Eigin reynsla Einsog áður var nefnt komst undirritað- ur í nokkra snertingu við alþjóðamál þegar hann var fulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands hjá Alþjóðasambandi stúdenta (IUS) í Prag árið 1956–57. Í samræmi við aðra þróun kalda stríðsins höfðu flest önnur stúdentasamtök í V- Evrópu þá sagt sig úr því, en eftir sátu aðallega samtök frá þriðja heiminum og hinum svokölluðu sósíalísku löndum. Í anda ‘slökunarstefnunnar’ um miðjan 6. áratuginn bauð IUS öðrum stúdenta- samtökum ‘takmarkaða aðild’ (associate membership) þar sem þau voru ekki endilega háð samþykktum alþjóðasam- bandsins en nutu samt ýmissa hlunn- inda. Sum landsamtök stúdenta ræddu þennan möguleika, svosem í Englandi, Frakklandi og Finnlandi, en SHÍ var hið eina sem hafði tekið þetta skref áður en innrás Sovétríkjanna í Ungverjaland haustið 1956 batt enda á þessa slökun um langa hríð. Þarf ekki að fara í graf- götur um að íslenskir stúdentar væntu sér einkum ódýrra ferðalaga með þessu móti. Fyrir hálfgerðan grænjaxl í þessum efnum var mjög lærdómsríkt að kynnast stúdentum frá þriðja heiminum, einkum þeim sem voru að berjast fyrir sjálfstæði þjóða sinna undan nýlenduveldum sem enn höfðu ekki verið brotin á bak aftur. Ekki var síður forvitnilegt að uppgötva hversu áhugalausir svonefndir stúdenta- foringjar frá Sovétinu og fylgiríkjum þess voru um sósíalisma eða pólitískar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.