Úrval - 01.12.1947, Blaðsíða 23
HJÁTKtT SJÓMANNA
21
flotastjórnin hafi einu sinni
ætlað að ganga að þessari hjátrú
dauðri. Það lét byggja skip,
skírði það Frjádag (Friday) og
hleypti því af stokkunum á
föstudegi. Skipstjóri var valinn
maður að nafni Frjádagur, og
skipið fór í jómfrúferð sína á
föstudegi. Síðan hefur ekkert til
þess spurzt.
Trúin á draugaskip er einnig
mjög útbreidd. Kunnast þeirra
er án efa „Hollendingurinn
fljúgandi." Sagan af honum er
til í mörgum útgáfum, en í meg-
inatriðum segir hún f rá ólánsöm-
um sjómanni, sem dæmdur er til
að sigla um úthöfin til eilífðar.
Hún er hliðstæð hinni alkunnu
sögu um Gyðinginn gangandi. í
einni útgáfunni segir frá harð-
fengum, hollenzkum skipstjóra,
sem fékk mótvind og neyddist
til þess að sigla beitivind vikum
saman án þess nokkuð miðaði
áfram. Loks missti hann þolin-
mæðina og sór við nafn djöf-
ulsins, að hann skyldi ná landi
þó að hann yrði að sigla beiti-
vind til dómsdags. Þessar óguð-
legu særingar hans voru þegar
skráðar eldstöfum á himininn,
og segir sagan að æ síðan komi
það fyrir í vondum veðrum, að
sjómenn sjái hið hásiglda skip
hins bannfærða skipstjóra sigla
á móti vindi og veðri, þegar önn-
ur skip sigla með rifuð segl.
Þessi þjóðsaga hefur orðið
yrkisefni margra skálda. Hinn
kunni sjóferðasöguhöfundur
Marryat hefur gert um hana
skáldsögu, og Richard Wagner
óperu. Margir sjómenn telja sig
raunverulega hafa séð „Holl-
endinginn fljúgandi."
Ýmiskonar hjátrúafullar at-
hafnir eru bundnar við skírn og
flotsetningu skipa. Að brjóta
vínflösku á stefni skips um leið
og það er skírt, er ævaforn at-
höfn, frá þeim tíma þegar skip-
in voru tileinkuð einhverju goði
og því færð dreypifórn þeg-
ar skipinu var hleypt af stokk-
unum. Stundum voru fangar eða
þrælar teknir af lífi og blóði
þeirra stökkt á hlunnana. Nú á
tímum er þetta skírnarathöfn,
og flestir sjómenn trúa því, að
skipi, sem ekki hefur hlotið
rétta skírn, sé stöðug hætta bú-
in.
Þegar um kaupfar eða fiski-
skip er að ræða, er kampavíns-
flaska brotin á stefni þess, og
gerir það sá, sem valinn hefur
verið til að skíra skipið; lætur
hann þá jafnframt í ljós ósk um
farsæld fyrir alla, sem sigla