Úrval - 01.12.1947, Page 86
84
ÚRVAL
ur að honum. Á langleiðum eru
jámbrautimar miklu fljótari og
ódýrari. Og á skemmri vega-
lengdum en þrem km. í borgum
með 100000 íbúum eða meira
er reiðhjólið fljótara í förum;
og tvo km eða minna eru farar-
tæki postulanna fljótari að fara.
Bílarnir em mest notaðir í
borgum og einmitt þar hafa þeir
algerlega misst gildi sitt sem
tæki til tímaspamaðar. Þeir
em orðnir of margir þar til þess
að geta annað en skriðið hver í
kringum annan eða hver á eftir
öðrum.
Brunaliðið í Boston hefur
sannreynt, að það er ekki eins
fljótt að komast á brunastað í
bílum sínum og það var í hest-
vögnum fyrir 50 árum. Ef þú
slasaðist í Chicagoborg yrðirðu
fljótari að komast í sjúkrahús
í hjólbörum en í sjúkrabíl.
Frá ,,þægindunum“ sem því
fylgir að nota bíl verður einnig
að draga tímann og tilfinninga-
orkuna sem fer í það að leggja
bílnum á bílastæði. Þú ert hepp-
inn ef þú finnur í nokkurri
amerískri borg bílastæði, sem
er nær en tíu mínútna gang frá
þeim stað, sem ferðinni er heit-
ið til, að ekki sé talað um
minna. Auk þess kostar það
peninga að leggja bíl á bíla-
stæði.
Þessar duldu greiðslur em
mjög mikilvægar, ef athuga á
„hina miklu amerísku blekk-
ingu.“ Því að gildi bílsins sem
tækis til tímaspamaðar er fólg-
ið í tímanum sem það tekur að
vinna fyrir peningunum sem
þarf til þess að spara tímann
sem hann sparar.
Hinn sýnilegi bílakostnaður
er fjórði hæsti liðurinn í heim-
ilishaldi meðalf jölskyldu, aðeins
lítið eitt lægri en húsaleiga, fæði
og fatnaður. Hinn duldi kostnað-
ur þokar honum sennilega upp í
þriðja sætið, því bíllinn er miklu
kostnaðarsamari eign en flestir
eigendur gera sér ljóst. Sam-
kvæmt útreikningum, sem telja
má nokkum veginn áreiðanlega
mun það kosta um 230 krónur
á mánuði að eiga bíl — án þess
að nota hann nokkuð. Þar við
bætist svo aksturskostnaður-
inn.
Oliver E. Baker, prófessor
við Marylandháskóla, hefur
reiknað út að það kosti álíka
mikið að eiga bíl og ala upp
bam. Hann telur að þetta tvennt
hafi áhrif hvort á annað. —
„Þegar bílasalan eykst, fækkar
bamsfæðingum' ‘ — og hann