Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 10
8
Hlin
helming (10 arkir, 160 bls.), e£ útsölumenn vildu skuld-
binda sig til að tvöfalda áskrifendatöluna, en verðið
(1,00) skyldi haldast óbreytt.
Þessu var ágætlega vel tekið. Ritið stækkaði um helm-
ing, en verðið hjelst óbreytt næstu 11 árin, eða til 1936.
Eftir það 2,00 í nokkur ár. Jeg las allar prófarkir og bjó
ritið til sendingar, oft með aðstoð Prentverksins.
„Hlín“ náði brátt miklum vinsældum, barst til fjar-
lægra hjeraða og til landa okkar vestan hafs. Varð eitt
stærsta upplag landsins (6000), kepti lengi við Almanak
Þjóðvinafjelagsins undir stjórn Tryggva Gunnarssonar.
Frá 1922 hjet „Hlín“ ekki lengur Ársrit Sambands
norðlenskra kvenna, heldur Ársrit íslenskra kvenna. —
Útsölumenn urðu 3—400, sem undirgengust sömu skil-
mála og hinir eldri, og hjeldu þá engu síður vel. — Út-
sölumenn, konur og karlar, hlutu aldrei önnur sölulaun
en eitt áritað eintak frá ritstjórans hendi.
Það sem meðal annars kom því til leiðar að hægt var
að halda þessu lága verði á ritinu, og halda því svo lengi,
var það, að sú regla komst á, að kosta sem minstu til
burðargjalds. — Það var furðulega lítið, þegar á alt er
litið.
Umsvifalaust, og eiginlega umtalslaust, komst það lag
á, að ritið var sent í stórum strigapokum til vissra manna
á aðalstöðvum, sem dreifðu svo sendingunum með ferð-
um um landið. — Ekki hefur spurst, að einn einasti bögg-
ull hafi lent í óskilum.
Hlutaðeigendum til verðugs lofs, birti jeg hjer að
gamni nokkur helstu nöfn þessara ágætu hjálparmanna,
karla og kvenna:
Akureyri og Eyjafjörður: Ejöldi kvenna víðsvegar og
Kaupfjelag Eyfirðinga.
Skagafjörður: Jón Þ. Björnsson, skólastjóri, og Kaup-
fjelag Skagfirðinga.
Húnavatnssýsla og Strandasýsla: Jón Baldurs, síðar
Tómas Jónsson (Kaupfjel.).