Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 226
224
Hlín
Þórhallur Bjarnarson, biskup, skrifar „Merkir íslendingar".
Það hefur varla nokkur maður íslenskur, að Jóni Sigurðssyni frá-
skildum, þessa síðustu mannsaldra, haft jafnmikla leiðtogahæfi-
leika og síra Jón Bjarnason í Winnipeg.
Benedikt Gröndal, skáld, var hinn mesti listamaður, málari. —
Samdi, meðal annars, Fjallkonumyndina fögru, 1874. — Hann átti
mikið málverkasafn af íslenskum dýrum. Safnað síðan 1875. —
Veitti Alþingi honum lengi árlegan styrk. — Hann sendi hverju Al-
þingi styrkbeiðni sína skrautritaða með mikilli viðhöfn og tilbreytni
og í fögrum umbúðum, en þó var styrkbeiðnin sjálf ætíð svo fáorð
sem verða mátti. — Alþingi geymir öll þessi ávörp Gröndals eins og
minjagripi.
Hann skrautritaði svo fast fram að andláti, að vart var hægt að
sjá þar merki á handskjálfta eða sjóndepru. (80 ára 6. okt. 1906.
Dó 2. ágúst 1907.)
Ungmennasambandsþingið á Laugarvatni 1965.
Þegar hinu fræga þingi Ungmennasambands íslands á Laugar-
vatni var lokið, sunnudaginn 2. júlí 1965, komu 60 liúsfreyjur og
börn úr Hrunamannahreppi og af Skeiðum í Árnessýslu, til að
hreinsa mótsvæðið. Var unnið rösklega að hreinsuninni á mánu-
daginn. Þótti vel af sjer vikið.
MANNRJETTINDI.
Lögin tóku gildi á árinu 1962 og var þá um 21% munur á laun-
um karla og kvenna við sömu störf í verksmiðjum, verslunum, skrif-
stofum og almennri erfiðisvinnu. — En munurinn lækkaði um
fimmtung á ári, samkvæmt lögunum, og fullum jöfnuði varð náð
hinn 1. janúar 1967. — Þar með var komið í höfn langþráð bar-
áttumál og umfram alt merkt mannrjettindamál.
Óscar Clausen skrifar: 1877, eða fyrir rjettum 90 árum, var alveg
þur sjór í Faxaflóa, og því neyð mikil í Reykjavík og öllum kaup-
túnum og sveitum.
Þá stofnuðu nokkrar konur í Reykjavlk Tóvinnufjelagið, en það
Ijet konur fá ull til lieimavinnu, og greiddu vinnulaun fyrir, sem
ekki voru skorin við nögl, og þótti þetta notaleg hjálp, sem margar
konur notuðu sjer af.
Gamall vinur Morgunblaðsins skrifar:
Jeg óska blaðinu til lukku með sín fimmtíu ár. — Sjerstaka at-
hygli vekur yfirlit þau, sem blaðið hefur birt undanfarnar vikur