Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 180
178
Hlín
fyrsta Goodtemplarastúkan stofnuð, og Reglan heldur
húsinu við. — Þá voru þarna blaðamenn: Björn Jónsson
„Fróði“ og þeir síra Matthías, Páll Árdal, Einar og Sig-
urður Hjörleifssynir.
Ekki mátti veitingahúsið vanta: Það sá hún Elín Gunn-
arsen frá Saurbæ um: „Bauk“. Þar var og verslun með
það fínasta frá Höfn af kvenfatnaði: Anna Erlendar. —
Ekki má gleyma Kristjáni Geirmundssyni, fuglafræðingi,
sem var svo „glúrinn", eins og þeir segja fyrir norðan,
að Reykjavík mátti ekki án hans vera, og þangað fór
hann. Svo var þarna náttúrlega ráðherra og alþingis-
maður: Magnús Kristjánsson.
Það mátti því segja, að mannfólkið var ekki síður fjöl-
breytilegt en umferðin. — Þó hefur ekki verið minst á
þann hópinn, sem ef til vill var athyglisverðastur: Það
voru fallegu stúlkurnar. — Akureyri hefur lengi verið
annáluð fyrir fallegar stúlkur, og Fjaran var svo sannar-
lega ekki afskift í þeim efnum. — En þær voru ekki bara
fallegar stúlkurnar í Fjörunni, þær voru líka listfengar:
Söngkonur, leikkonur, málari og myndhöggvari. (Matt-
híasardætur, Svafa Jónsdóttir, Margrjet Valdemarsdóttir,
Elísabet Geirmundsdóttir o. fl.).
Og þá mætti kannske minnast á húsfreyjurnar í Fjör-
unni, þær voru bæði fallegar og fjölhæfar, farsælar í
heimilisstjórn, handavinnu, garðyrkju og fjelagsskap. —
Það er þá fyrst að nefna Guðrúnu, konu síra Matthíasar,
Dómhildi, konu Magnúsar ráðherra, Ingibjörgu, konu
Odds Bjömssonar, prentsmiðjustjóra og bæjarfulltrúa,
og Þuríði, konu Sigurðar Hjörleifssonar, ritstjóra, þá
Soffíu, konu Sigurðar smiðs, þá húsfreyjurnar í Gróðrar-
stöðinni: Þóru, konu Sigurðar Sigurðssonar, skólastjóra,
Jóninnu frá Draflastöðum, Guðrúnu Þ. Björnsdóttur,
garðyrkjukonu, þá Þórdísi, konu Davíðs smiðs, þar voru
auk heldur tvær uppgjafa-prestskonur: Kristbjörg frá
Kjama og Ragnhildur, móðir húsfreyju, ættuð frá
Möðrudal. — Þar var einnig Sigríður Hallgrímsdóttir,