Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 167
Ríkisútvarpið.
Úrvalserindi. — Mállýskur.
Mikil blessun var síminn og Útvarpið í fámenni og
strjálbýli sveitanna og síðar rafmagnið. — Mig hefur lengi
langað til að minnast á það, hve mikil þörf væri á að gefa
út á prenti úrval þeirra erinda, sem flutt eru í Ríkisút-
varpinu. — I>að vita allir, að mikið er vandað til þeirra
erinda, sem flytja á í Útvarpið. — Marga daga, stundum
ár, er unnið að því, sem flytja á í heyranda hljóði fyrir
almenning. — En alkunnugt er líka, að mikill hluti þjóð-
arinnar hlustar alls ekki af ýmsum ástæðum, svo hin
ágætu erindi fara fyrir ofan garð og neðan hjá mörgum.
— Alkunnugt er líka, að liið talaða orð fer inn um annað
eyrað og út um liitt. — Mælt mál gleymist fljótt. — Marg-
ir óska Jress, eftir að hafa hlustað á eftirtektarverð erindi
í Útvarpi, að fá að sjá það á prenti, svo hægt væri að at-
liuga það betur.
Auðvitað eru erindi Jressi ekki töpuð, en geymd vel og
vandlega í safni Útvarps, en Jrað er ekki nóg. — Það var
gerð tilraun með útgáfu Útvarpstíðinda fyrir nær 30 ár-
um síðan (1938—42). — Mæltist vel fyrir, en því var svo
bætt, og ekkert kom í staðinn. — Hvers vegna? — Væri
ekki gaman að gera tilraun að nýju. — Við þurfum að sjá
úrvalserindin, Jrau bestu.
Um leið og minst er á Útvarpið má drepa á annað
atriði í Jrví sambandi. — Það eru mállýskurnar.
Oft er jress minst, að á íslandi sjeu engar mállýskur,
góðu heilli! — Jú, svo er sagt, en ekki Jrarf að hlusta lengi
eða oft í Útvarp, svo menn ekki dragi ræðumenn í dilka