Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 112
110
Hlín
Nýmæli í garðyrkju.
Allir sem komnir eru til vits og ára vita, að veðráttular
hjer á landi er all-áfellasamt og komið geta sumur, að
uppskera á kartöflum og grænmeti bregðist, einkum á
Norðurlandi, nema þá þar sem skilyrði eru sjerstaklega
hagkvæm. — En nú er komið til sögunnar nýtt hjálpar-
meðal við grænmetis- og sumarblómarækt, og á jeg þar
við hinn gagnsæja plastdúk, sem reynst hefir ágætlega
yfir sólreiti í stað glerglugga, sem bæði eru miklu dýrari,
og mjög brothættir eins og allir vita. Sólreitur sem væri
4 m. á langd og 1 m. á breidd mundi vera mikil hjálp
fyrir meðal stórt heimili. Reitinn má gera úr t.d. tommu-
borðum og verður bakhliðin að vera um 45 sm, en fram-
hliðin 30 sm. há. Plastið má festa með lista á hærri hlið
reitsins, en lægra megin verður að festa plastdúkinn
milli tveggja þunnra lista og nái dúkurinn ca. 10 sm.
niður fyrir hægri brún reitsins, en þar verður að vera
þægileg festing, svo auðvelt sje að rúlla dúknum upp
þegar vökva þarf eða lofta út vegna hita. Hæfilega þykt
plast yfir svona reit mun kosta um 50 krónur og borðin
í sólreitinn um 500 krónur, sje miðað við óbrúkað timb-
ur.
í fjögurra fermetra reit má koma til nauðsynlegustu
matjurta- og sumarblómaplöntum fyrir meðalstórt heim-
ili, en til plantnanna verður að sjálfsögðu að sá inni í
jurtapotta eða smá kassa. Fræi af stjúpum, og raunar
fleiri tegundum, verður að sá um miðjan mars, eða fyrr,
og svo hinum ýmsu tegundum hvað af hverju fram um
20. apríl, en þá, eða fyrr, má byrja að planta stjúpum út
í reitinn, en síðan sumar-aster, morgunfrú o.fl. Moldina
verður að undirbúa í reitinn að haustinu. Sje vorið kalt
verður að breiða yfir reitinn á nóttunni strigapoka eða
mottur. Venjulega mun hægt að gróðursetja blóm og
grænmeti út í garðinn hjerlendis í byrjun júní, og eru
þá aðeins skildar eftir nokkrar plöntur af káli eða öðru
1