Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 185
Hlin
183
an Blöndu yfir 50 ár. — Eyvindarstaðir er fornt höfuðból
og áttu þeir alla heiðina austan Blöndu. — 1464 er Agli
Grímssyni á Eyvindarstöðum dæmdur heiðartollur af
öllu landinu milli Hjeraðsvatna og Blöndu. — Hverjum
búanda, sem átti 10 lömb eða fleiri, var gert að greiða
honum eitt lamb árlega í heiðartoll, hvort sem hann ræki
lömb sín á afrjettina eða ekki. — Hefur þetta varla verið
færri en 150—200 lömb á ári. — Þessi siður hjelst að
mestu óbreyttur fram á vora daga: Allir dalir voru þá
bygðir, engin afrjett, en fylgdu afrekstrar á Eyvindar-
staðaheiði. — Lambatollurinn skyldi greiðast, hvort mað-
ur átti 20 eða 200 fjár. — En Eyvindarstaðir áttu að vinna
öll gren á heiðinni. — „Reynistaður átti mikið land í
Staðarfjalli," segir Jón. — Eyvindarstaðaheiði var seld
1895 Upprekstrarfjelaginu (2Vz hreppur) á 10—20 þús-
undir. — Það var um það leyti sem Jón byrjar búskap,
liann sagðist hafa orðið feginn.
Eyvindur sörkvir, kom með Ingimundi gamla, nam
Blöndudal fram að Hofsjökli frá ármótum Blöndu og
Svartár. — Bara austanverðu, fallega að-skilið af Blöndu.
Hinumegin Blöndu er Auðkúluheiði, giltu þar hin
sömu lög. — Þar blasa við Guðlaugsstaðir og Eiðsstaðir.
Jón sagðist kunna vel við sig hjerna svo nærri Blöndu,
þekti hana frá upptökum í Hofsjökli til ósa og hefði oft
teflt við hana tvísýnt tafl, hún væri góð varsla, engin
skepna legði í hana.
Umtalsefni Jóns var oftlega ánægjuleg skólaför að
Hólum í Hjaltadal 1909, það var vikunámskeið. — Til-
drög þessi: Sigurður Sigurðsson, skólastjóri, var á ferð
þarna fram um sveitirnar að leita að mótaki fyrir bænd-
ur, dvaldi einn dag á Eyvindarstöðum og fylgdi Jón hon-
um upp á hálsinn. — Sigurður hafði meðferðis stöng
eina mikla með hólk á endanum, stakk hann henni í
jörð niður, en ekkert fanst nema rofmór, einskisnýtur.
Leitaði hann þó víða, en fann ekki. — Um vorið skrif-
aði Sigurður mjer og bauð mjer að taka þátt í vikunáms-