Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 177
Fjaran á Akureyri.
Líklega er Fjaran á Akureyri merkilegasta gatan á ís-
landi, e£ ekki í víðri veröld, sakir þess, hve margt hefur
verið þar af merkilegu fólki og merkilegum framkvæmd-
um.
Verður nú reynt að finna þeim orðum stað.
Bygðin hófst fyrir nær 200 árum síðan undir brekk-
unni, frammeð Pollinum, hinni ágætu höfn Akureyrar. —
En í brekkunni, ofanvið húsin, eru víðáttumiklir kart-
öflugarðar, sem Akureyri er annáluð fyrir. — (Hans Lev-
er, kaupmaður, 1780—1843, kendi þeim ræktunina). —
Trjárækt hefur líka blessast vel þarna, falleg trje við flest
hús í Fjörunni. — Sum jafnvel þau fegurstu á íslandi.
Gatan, Fjaran, er lífæð kaupstaðarins. — Um hana fara
öll viðskifti Fram-Eyja 1:jarðar og Kaupangssveitar. — Það
koma þeysandi stórbændur og húsfreyjur, heimasætur,
vinnuhjú og börn, sem sagt stórmenni og smámenni, svo
og lestamenn í og úr kaupstað með vörur sínar. — Þar
fara og um allir langferðamenn, sem þurfa landleiðina
austur um sýslur, þeir ríða Leirurnar.
Fyrir nærfelt hundrað árum síðan var gerð uppfylling
austanverðu við götuna, frammeð Pollinum, þar sem
æðarfuglinn úir alla daga í ró og næði með unga sína,
ekki þarf að óttast sjávarganginn! — Á uppfyllingu þess-
ari voru bygð 6—7 hús, sem teljast mega með Fjörunni. —
Hólmarnir framan við bæinn, er slægjuland gott. — Eyja-
fjarðará hafði frjóvgað landið í þúsundir ára. — í vor-
leysingum flæddi áin brekkna milli, var yfir að sjá sem