Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 134
132
Hlin
myndatökunni. — (Áðurnefnt erindi er að finna í riti sr.
Magnúsar: „Kvöldræður í Kennaraskólanum“. — Einnig
hefir erindi þetta verið tekið upp í ,,Fermingargjöfinni“.)
J>á er um myndatökuna: — Það voru útisenur, er tekn-
ar voru hjer á landi. — Mest í Kelduhverfi, fram með
Jöklusá, í hinni ósnortnu náttúru þarna.
Fyrstu mennirnir komu snemma í júní, voru það verk-
stjórar, smiðir, verkamenn og hestamenn, er hirtu og
æfðu þá í sín hlutverk. — Þeir höfðu marga hesta (mig
minnir um 40). — Svo var bygður kóngsgarður í Hljóða-
klettum. — Var hann með farnu sniði, bröttum torfþök-
um og skíðgarði í kring. — Þetta var heimili Signýjar og
foreldra hennar.
Leikararnir komu í júlí og var þá farið að mynda. —
Voru margir fengnir í „statistahlutverk" hjeðan úr sveit-
inni, erum við spent að vita hverja við þekkjum, er við
sjáum myndina.
Annar kóngsgarður var settur upp í Nesinu heima í
Lóni. — Var það heimili Hagbarðs. — Var sá þáttur film-
aður þar, er Hagbarður kemst heim særður úr bardagan-
um við bræður Signýjar, og segir móður sinni fall bræðra
sinna, og lík þeirra eru borin heim. — Þeir voru einn dag
að mynda í Nesinu, komu þá ýmsir úr nágrenninu, að
sjá þetta. — Jeg sá þetta álengdar, sat á kletti, „sem hrafn
á fjallburst". — Staðirnir voru valdir með það fyrir aug-
um, að þarna máttu engin nútímamannvirki sjást, t. d.
varð að setja alt þannig upp í Nesinu heima í I.óni, að
ekki sæist heim á bæina.
Mörgum þótti gaman að koma í Hljóðakletta og sjá
byggingarnar þar. — Aldrei kom jeg þar, sá bara myndir
af þessu í blöðunum.
Nú er jeg búin að sjá myndir úr „Rauðu skikkjunni" í
danska jólablaðinu „Hjemmet“. — Þekti jeg þar myndir
úr Nesinu heima, en engan mann þekti jeg þar á.
Það var margt fólk í sveitinni í sumar við þetta, um
70 eða 80 manns. — Það hjelt til í Skúlagarði. — Það fór