Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 102
100
Hlín
lykkjunum. Tvær umferðir skal prjóna á milli í fyrsta
sinn. Síðan skal taka úr í annað sinn og steypa þá
fimmtándu lykkjunni á hverjum prjóni yfir og prjóna þá
eina umferð á milli. Þetta skal endurtaka þrisvar sinnum.
(Úr því skal taka úr eina lykkju á hverjum prjón, þar til
36 lykkjur eru á prjón, þá skal taka úr í einni umferð
tvisvar á prjón og aftur þegar 30 lykkjur eru á prjón, 25
lykkjur, 20 lykkjur og 15 lykkjur.)
Þriðja úrtaka: Þá skal steypa 30. lykkjunni á hverjum
prjón yfir, þá næst 45. lykkju, þá 60. lykkju, þá eru 10
lykkjur eftir á prjón, og skal þá steypa fimtu lykkjunni
á næsta prjón yfir. Þá færist til um fimm lykkjur frá
fyrstu úrtöku, og skal þá byrja aftur og færa úrtökuna
um 14 lykkjur í hvert sinn, sem úr er tekið, áfram prjón-
inn, og svo steypa 10. lykkju á næsta prjón. Þá færist til
aftur um 5 lykkjur, og skal þá færa úrtökuna eins um 13
lykkjur og steypa fyrstu lykkjunni og 14. lykkjunni á
næsta prjón. Þá færist til í þriðjá sinn um 5 lykkjur. Þá
skal færa úrtökuna um 12 lykkjur og síðan um 11 lykkjur
og umJO lykkjur og svo altaf eins, þar til 12 lykkjur eru
eftir Sverjum prjón. Fimm lykkjurnar sem færast til,
fækka um eina lykkju. — Þegar 55 lykkjur eru á prjón, Jaá
færist til um 4 lykkjur, þar til 41 lykkja er á prjón, þá
eins 3 lykkjur, þar til 32 lykkjur eru á prjón og tvær
lykkjur, þartil 15 lykkjur, og eina, þar til 12 lykkjur eru
á prjón.
Þá skal prjóna skottið og hafa það 10 sentimetra á
lengd. Þegar komnir eru 6 sm., þá skal taka úr 2 lykkjur,
og aftur 2 lykkjur, þegar komnir eru 8 sm. Úrtakan á
skottinu er þannig, að taka skal úr eina lykkju á prjón,
þar til 8 lykkjur eru á hverjum prjón og prjóna eina um-
ferð á milli. Þá skal prjóna 1J/2 sentimeter beint áfram
og fella svo af.