Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 44
42
Hlin
var Baldvin Einarssyni, en giftist síðar Hallgrími Jóns-
syni frá Reykjahlíð, presti á Hólmum í Reyðarfirði. —
Bræður Halldórs voru þeir síra Magnús á Grenjaðaistað
og Björn ritstjóri á Akureyri.
Dætur Halldórs afa voru Guðný, móðir Unnar Bene-
diktsdóttur, skáldkonu, og þær þrjár, sem fluttust austur,
fyrir tilstilli Kristrúnar á Hólmum: Sigurbjörg, móðir
mín, Guðrún, amma Guðrúnar Jónasdóttur, vefnaðar-
konu, og Jónína, sem giftist Einari, sem var hreppstjóri
í Norðfirði, og hvað eiga einhverjar best færðu sveitar-
stjórnarbækur sinnar tíðar.
Halldór á Geitafelli, afi minn, fluttist einnig austur
til Reyðarfjarðar, og dó hjá dóttur sinni, Guðrúnu,
ömmu Guðrúnar vefnaðarkennara, blindur, í hárri elli.
Umsögn Magnúsar Stefánssonar frá Borgamesi, sögu-
stúd. frá Sogni, Oslo. — Einn af stúdentum Guðrúnar
Brunborg:
Guðrún giftist árið 1920, Solmund Brunborg, norsk-
um landbúnaðarkandídat. Eignuðust þau fjögur börn:
Reyðunni, Olaf, Erling og Egil. — Hafa þau lengst af
átt heima á Billingstad, fallegri sveit, nálægt Oslo, þar
sem þau hafa komið sjer upp ágætu heimili með falleg-
um garði í kring. — Hefur heimili þeirra jafnan verið
opið íslendingum, sem dvalið hafa í Noregi, lengur eða
skemur, og varð fljótlega einn helsti samastaður þeirra,
enda hefur Guðrún ávalt verið annáluð fyrir gestrisni
sína. — Þeim, sem til Noregs komu ókunnugir og ein-
stæðingar, hefur hún reynst sem besta móðir.
Landar, sem heimsóttu þau góðu hjón í Noregi 1939,
dáðust að fallegu heimili og fallegum börnum. — Alt
virtist leika í lyndi.
Nokkru síðar dundu hörmungarnar yfir. Noregur var
hernuminn og fjöldi æskumanna sendir úr landi og líf-
látnir, þar á meðal Ólafur, sonur Guðrúnar, þessi góði,
fallegi piltur.