Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 188
186
Hlin
Sveinn Jónsson frá Grímstungu.
Svo var það hann Sveinn minn Jónsson, sem alltaf
kendi sig við Grímstungu í Vatnsdal. „Jeg fór þangað
1914 og á þar heima enn, þó að jeg fyrir ellisakir hafi
dvalið hjer á Ellihælinu síðustu árin.“ Hann var lengst
af vinnumaður í Grímstungu hjá Lárusi Björnssyni og
átti nokkrar kindur. „Jeg heyjaði handa þeim meðan jeg
gat. Svo ætlaði jeg að farga þeim öllum, en húsbóndinn
sagði, að það væri ómögulegt fyrir nokkurn mann að
eiga heima í Grímstungu nema hann ætti kindur, og
hann fóðrar alltaf fyrir mig nokkrar ær, og sjer um þær
að öllu leyti.“ — Sveinn elskaði staðinn og fólkið hjart-
anlega og kallaði Lárus altaf húsbóndann.
Sveinn var fæddur á Sigríðarstöðum í Vesturhópi og
ólst upp í mikilli fátækt. Hann misti ungur föður sinn
og var eftir það hjá vandalausum, en altaf á góðum heim-
ilum. „Við vorum 5 systkinin, og nú eru þau öll dáin
nema jeg.“
Ætt Sveins var mikil og merk. Sigríður móðir hans
var dóttir Lorleifs á Hjallalandi og Hjallalands-Helgu,
sem þekt var fyrir hagmælsku og söng. IJað var á orði
haft, að Björn Blöndal, sýslumaður í Hvammi, þættist
ekki geta farið til kirkju nema Helga syngi. Þórarinn
bóndi í Umsvölum, faðir Helgu, átti 24 börn, en þau
Hjallalandshjón 16. Þorsteinn Þorleifsson, merkisbóndi
í Kjörvogi á Ströndum, var móðurbróðir Sveins. Hann
var mikill sjósóknari, og átti margar ferðir yfir Húna-
flóa, en fórst þar að lokum.
Sveinn mintist oft á vinnumannsdvöl sína í Gríms-
tungu. „Jeg stundaði mikið veiði fyrir húsbóndann fram
í heiðavötnum. — Sex sumur var jeg við það aleinn, og
þá gat jeg vitjað um nótt sem dag. — Eina vikuna veiddi
jeg 600 silunga. — Fyrst var veiðin sótt svona dag og dag,
en seinna var farið að sækja hana annan hvorn dag. —