Hlín - 01.01.1967, Page 195
SAGA.
Hinn mikli Kristofer.
(Ný sumargjöf 1859. Kaupmannahöfn. Útg. Páll Sveinsson).
(Stafsetning óbreytt).
Kristófer (Christophorus) fjekk nafn sitt af því, að
hann bar Krist, drottinn vorn, á herðum sjer, en áður
hjet hann Repróbus og var fæddur í Kanaanslandi; hann
var mikill vexti sem tröll og ógurlegur ásýndum.
Repróbus, sem vissi afl sitt, einsetti sjer að þjóna eng-
um herra, nema þeim, sem engan hræddist í öllum
heimi. En er hann margsinnis hafði haft drottnaskipti,
heyrði hann sagt af konungi nokkrum, er væri mestur og
voldugastur á jarðríki. Fór hann á hans fund og mælti:
„Mikið hef jeg heyrt látið af mætti yðrum og veldi og
heyrt hef jeg, að þjer viljið þiggja þjónustu mína“. Kon-
ungi fannst mikið um svo stórfenglegan og óttalegan
mann, þáði boð hans og hafði hann í hirð sinni. En þeg-
ar Repróbus um tíma hafði þjónað konungi, svo honum
varð vel að skapi, vildi svo til, að söngmeistari nokkur
kom á ferð sinni í konungs garð. Kunni hann að syngja
mörg ágæt ljóðmæli og voru þau flest guðrækilegs efnis.
Var hins vonda anda stundum getið í þeim, en í hvert
skipti sem meistarinn nefndi djöfulinn, gerði konungur
krossmark fyrir sjer, því hann var kristinn. Repróbus
furðaði sig á því og mælti: „Því dragið þjer stafi í lofti, í
hvert skipti, sem djöfull er nefndur?" Konungur vissi
ekki, hvort hann ætti að segja honum það, því hann vildi
ekki missa Repróbus úr þjónustu sinni. Repróbus tók þá
13