Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 11
Hlín
9
ísafjörður, Djúpið og Vestfirðir: Sigríður Guðmunds-
dóttir, Kristján frá Garðsstöðum.
Breiðafjörður og Snæfellsnes: Sigurður, hreppstjóri,
Stykkishólmi.
Borgarfjörður: Sigurður Guðsteinsson, verslunarmað-
ur, Borgarnesi.
Suðurland: Oskar Thorarensen. Bifreiðastöð Reykja-
víkur.
Suðumes: Ingibjörg Sigurðardóttir, Hausthúsum,
Garði.
Reykjavík: Ragnhildur Runólfsdóttir, verslun.
Vestmannaeyjar: Helga Þorleifsdóttir, síðar Kristjana
Óladóttir.
Fljótsdalshjerað og firðir: Sigríður Jónsdóttir, Egils-
stöðum, síðar Bjarni Linnet.
Þingeyjarsýslur: Kaupfjelögin.
Þannig er hringurinn kominn um landið. — Eiga
þessir menn, karlar og konur, ásamt útsölumönnum öll-
um, hinar bestu þakkir skilið fyrir hjálp og aðstoð,
marga og mikla.
Sumt af þessu fólki hef jeg aldrei augum litið, en það
reyndist hið besta.
„Hlín“ skrifaði allar sínar útsölukonur Frn, eins og
karlmennina Herra. — Ókunnugt var um stöðu og stand.
Ekki voru allar konurnar húsfreyjur. Vandræðaástand:
Konan, stúlkan, ekkjan, fröken, ungfrú (kannske 70—80
ára). Nei, það var einfaldast að hafa sama nafn á öllum.
Vona að „Hlín“ hafi átt nokkurn þátt í að hrófla við í
því öngþveiti.
Efnið.
Við höfðum hug á að láta „Hlín“ vera tengilið fjelaga
milli sambandsdeilda, með frjettum víðsvegar að af starf-
inu, og fræðslu um fjelagsstarfsemi annarsstaðar, sem var
til eftirbreytni. — Einnig að vekja þjóðlegan og kristi-
legan hugsunarhátt og metnað með þjóðinni.