Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 209
Hlin 207
hún sagðist hafa haft tvenn gleraugu við það, bobínettið
var svo smágert.“*
Frú Sigríður heldur áfram: „Mjer hefur gengið erfið-
lega að komast að raun um hverjir það voru, fjelög eða
einstaklingar, sem gáfu Alexandrínu drotningu skaut-
búninginn 1921, þær sem gengust fyrir þessu eru flestar
dánar. — Ingibjörg Eyfells í Baldursbrá heldur, að það
hafi ekki verið fjelög, sem gengust fyrir þessu. — Hún er
búin að fara í Landsskjalasafnið og til Þjóðminjavarðar,
en hvergi sjest stafur skrifaður um þetta. — í bókinni
„Öldin okkar“ stendur: „íslenskar konur gáfu Drotning-
unni skautbúning úr silki og gulli.“ — „Morgunblaðið"
skrifaði margar blaðsíður um konungskomuna, en um
búninginn aðeins, að það hafi vakið mikinn fögnuð í
Alþingisveislunni, að Drotningin var í skautbúningn-
um.“ — En það man jeg líka, því jeg var í þessari veislu,
og hlaut sæti við hlið Einars Benediktssonar, skálds. —
Jeg hef talað við formenn ýmsra kvenfjelaga, en engin
minnist þess að hafa sjeð skrifaðan staf um þetta í funda-
bókum, og má það merkilegt heita."
Drotningin gaf Listasafni Kaupmannahafnar búning-
inn, eftir sinn dag. — Þar skoðaði jeg lrann, þegar jeg var
ytra síðast (1961). — Það var víst í Rosenborgarhöll. —
Þar naut búningurinn sín ágætlega í glerskáp, sem stóð
fram á gólfi, svo hægt var að ganga hringinn í kring og
skoða búninginn frá öllum hliðum. — Og það var sjón
að sjá!
H. B.
* Það var Landssýning á heimilisiðnaði í Reykjavík um þetta
leyti. — Sýningin var í gamla Iðnskólanum í Lækjargötu, svo við
Fríða, sem gættum sýningarinnar, og settum liana reyndar upp lika,
sáum á eftir öllum skautbúnu konunum í veisluna í Iðnó.