Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 183
Karlarnir mínir þrír.
H. B.
Jón Jónsson frá Eyvindarstöðum.
Hjerna í Ellideild Hjeraðshælis Húnvetninga kennir
margra grasa, eins og nærri má geta, þar sem 25 manns
er samankomið, en alt er það gott og skemtilegt fólk,
flest hreinræktaðir Húnvetningar, margt húsbændur og
húsfreyjur, sem kunna skil á mörgu og hafa frá mörgu
að segja.
Mjer eru sjerstaklega minnisstæðir þrír karlar, sem
hjer voru árum saman, og settu svip á staðinn.
Það er þá fyrstan að nefna Jón Jónsson frá Eyvindar-
stöðum í Blöndudal f. 21. okt. 1869, d. 25. febr. 1963.
Verður þá fyrst fyrir að geta ættar og uppeldis. — Jón
var fæddur á iBrúnastöðum í Lýtingsstaðahreppi í tún-
jaðri býlis Jóhanns ríka bónda. — Faðir hans var
vinnumaður hjá bónda, móðirin í húsmensku. — Þannig
liðu æskuárin, þau fyrstu, en ekki leið á löngu að fjöl-
skyldan fluttist vestureftir í Blöndudalinn, þaðan var
móðirin, Ósk Guðmundsdóttir, ættuð.
Jón mintist þess oft, að móðir sín hafi leitt sig, þegar
hann var á 8. ári yfir hálsinn, upp að Brún í Svartárdal,
„þar sem jeg f jekk að sjá Guðmund móðurafa minn, Jóns-
son, hann var þá á tíræðis aldri, þráðbeinn, fallegur karl,
hátt enni, sköllóttur, þótti spakur að viti, söngvinn og
skáldmæltur. — Jón afi var sonur Jóns hreppstjóra á Ey-
vindarstöðum, en hann var bróðir Halldóru Bjarnadótt-
ur á Ási í Vatnsdal og Björns á Brandsstöðum. — Afi
minn var hjá Halldóri stórbónda, þarna á Brún, hann var
ógiftur, fjármargur. — Jeg sá fje Halldórs á leiðinni og