Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 139
Vorið góða grænt og hlýtt...
Sumarylur, blíður blær!
Ósjálfrátt vaknar löngun í huga okkar og hjörtum að
fagna sól og sumri með því að lireinsa til inni og úti. —
Náttúran laðar okkur til þess, hún er á þessum yndislegu
vordögum svo hrein, svo ung og svo fögur. — Okkur
mannanna börn hlýtur að langa til að eiga einhvern þátt
í þessari fegrun, í þessari endurreisn.
Það sýnir sig líka á degi hverjum hjer í bænum og í
nágrenni hans, að menn vilja taka þátt í þessu starfi. —
Allir vita að ein allsherjar hreinsun fer fram inni í hús-
um manna á vorin, þar er þvegið og viðrað burt vetrar-
rykið, burstað og blásið. — En menn láta ekki þar við
lenda, þeir, sem eiga einhvern lófastóran blett, nokkur
græn grasstrá, fara á stúfana og hressa upp á þau, raka og
prýða, sá og rækta, og húsagarðarnir eru þrifnir til, ruslið
fært burt. — Sumir gera sjer hægt um hönd og þvo húsin
sín utan, og það er furða hve þau taka miklum stakka-
skiftum við þá aðgerð. — Krakkarnir mála girðingarnar
og eru sigri hrósandi yfir að fá að vera með í þessu fegr-
unarstarfi. — Já, börnin eru bestu starfsmenn við alt þess-
háttar, og hversu holt er það ekki fyrir þau að vera hjálp-
leg einmitt í þessari endurreisn. — Lofið þeim að hjálpa
til að gera húsagarðana, sem eru svo margir til hjer í
Reykjavík, bakgarðar, í góðu skjóli, lofið þeim að hjálpa
ykkur að taka þar til og græða nokkur strá eða nokkur
blóm og gera vistlegt, svo þar úti megi hafast við sem
mest í sumar. — Gleymið ekki að gera þar sæti og vist-
legan verustað í góðu veðri, en dálítið rúm þarf að vera
eftir handa börnunum að leika sjer á, svo þau þurfi ekki