Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 225
Hlin
223
því geymist í söfnum, innan og utanlands. — Og útsaum eigum
við fullkomlega á við aðrar þjóðir, margþættan úr íslenskri ull. —
Togið er þar fremst i flokki, glansandi eins og silki, í vefnaði,
knipli og útsaumi.
Það er í frásögur fært, að þegar handprjónaða peysan var höfð
við skautbúning, þá hafi úthverfan verið látin snúa út. — Þótti til-
breyting. — Prjónapeysur notuðu eldri konur alt til aldamóta 1900.
— Jeg minnist þess, að árið 1900, sem jeg kendi í Kvennaskóla
Reykjavíkur, gerði jeg það að gamni mínu, að jeg klæddist einn
daginn gömlu peysunni, sem móðir mín hafði prjónað á unga ár-
um. — Stúlkurnar dáðust að peysunni. — Þótti gaman að hafa sjeð
svo gamlan búning, sem ömmur þeirra flestra höfðu notað.
Sigurður málari, Guðmundsson, sem manna mest gerði sjer far
um smekklegan búning íslenskra kvenna, sagðist helst vilja að kon-
ur notuðu prjónapeysur, þótti þær fara þeim betur en vaðmáls- eða
klæðispeysur.
Guðrun vefari á ísafirði skrifar: Jeg er þakklát henni Sigríði
Bjarnadóttur, klæðskerameistara í Reykjavík, sem hefur um árabil
saumað mikið af vönduðum kjólum fyrir vandlátar konur í sauma-
stofu sinni í Reykjavik úr handofnum efnum frá mjer.
Það liafa komið þó nokkrar fyrirspurnir um efni frá Danmörku
nú nýlega, einnig fyrirspurnir frá Svíþjóð um hvað við framleiðum
úr íslenskri ull.
Það eru aðallega húsmæður sem vinna hluta úr degi í Vefstofu
minni.
Jeg lita mest úr rabarbara og smára.
Gunnar Matthíasson, Jochumssonar, búsettur í 720 E. Parkway,
Inglewood, Californíu, U. S. A., skrifar 16. júní 1963:
„Hjaltalín, kennari minn sagði við okkur nemendur sína á
Möðruvöllum um árið:
„Ef þið skiljið eftir vel prjónaða sjóvetlinga, hafið þið nytsam-
lega lifað.“
Hjallalin skólastjóri i Fjörunni.
Þegar jcg var unglingur, var jeg oft langdvölum lijá Soffíu ömmu
minni í Fjörunni á Akureyri. Þá kom Hjaltalín skólastjóri stund-
um til okkar. Amma skar tóbak fyrir ltann, og hann var jtá að sækja
það.
Þá bauð hann mjer að koma upp í skóla og sitja í enskutímum.
Og var jtað með Jiakklæti jiegið.
Fanney.