Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 216
Heimavistarbarnaskólar. - Fjelagslieimili.
Það er ekki ofsögum sagt af framförunum og fram-
kvæmdunum á íslandi síðustu 20—30 árinl — Hjema
koma frjettir frá Fræðslumálaskrifstofunni um Barna-
skólana og Fjelagsheimilin, svo ekki er um að villast:
Heimavistarbamaskólar í eigin húsnæði eru 1967
fimmtíu og sjö talsins. (Vistheimilið í Breiðuvík á Snæ-
fellsnesi og Barnaheimilið í Sólheimum í Grímsnesi ekki
talin með). (Tveir farskólar, það er alt).
Og Fjelagsheimilin voru 1966, sjötíu og sex talsins, og
26 í byggingu, svo nú eru þau (1967) ef til vill búin að ná
hundraðinu! — Já, miklir menn erum við, Hrólfur minn!
— Dálítið annað en þegar við vorum að tjalda skemmum-
ar innan með ábreiðum, áklæðum og brekánum, og
náttúrlega með moldargólfi. — Þarna voru haldnar brúð-
kaupsveislur og skemt sjer vel, ekki síður en nú. — Steik
og sætsúpa, fastákveðið, og svo púns. — Raðað eftir mann-
virðingum, frammi við dyr kannske Þorsteinn matgogg-
ur og Gunna boðflenna.
Stundum voru líka haldnar veislur inni í baðstofu,
sem var þiljuð í hólf og gólf, rýmt til, alt hvítskúrað og
skrautofnar ábreiður yfir öllum rúmum. — Þama var
meira að segja stundum dansað og leikin leikrit. — Við
rnunurn þetta, sem gömul erum orðin. — En nú hafa þeir
yngri orðið: — Fyrst Ingimar H. Jóhannesson, kennari
og skólastjóri: — Hann skrifar: „Jeg man vel, að fyrsti
Heimavistarbarnaskóli á íslandi, sem enn starfar, var
skólinn á Ásum í Gnúpverjahreppi í Árnessýslu, sem
Unnur Kjartansdóttir frá Hruna stjórnaði. — Hann byrj-
aði 1924. — Næsti var Biskupstungnaskólinn að Reyk-
holti í Biskupstungum 1927, sem Guðjón Rögnvaldsson