Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 231
Hlin
229
En dálítið er það nú skrítið, að í þessum stóra hópi er ekki nein
kona. — Ekki ein einasta.
Konur ættu þó, engu síður en karlar, að geta sent skemtilegar og
fróðlegar frjettir úr sínum heimahögum, eða sínu starfi. — Það var
um tína ein kona frjettaritari Morgunblaðsins, liún Regína Thor-
arensen á Gjögri. — Hennar pistlar þóttu góðir, en nú er hún flutt
úr Strandasýslunni, og engin komin í staðinn."
„Gamlar glæður". — Guðbjörg Jónsdóttir, Broddanesi. (Helgi
Hjörvar bjó til prentunar 1943.)
„Það er ómetanlegt lán fyrir börn og unglinga að fá að vera sam-
vistum við góð gamalmenni. — Það er svo margt, sem af þeim má
læra, og það fræ, sem þau sá, fellur ekki ætíð í grýtta jörð. — En á
æskunnar vori er áríðandi að sá góðu sæði í akur hjartnanna."
S. G. Steinunn Guðmundsdóttir, Skriðnesenni, Strandasýslu,
skrifar:
Ómótstæðilegt afl knýr mig til að senda þjer litlu Minningasög-
una mina, ef þjer þætti hún nokkurs virði.
Jeg hef víst verið mjög ung, því ekkert gerði jeg til gagns, er inn
kom, ásamt hinum börnunum, með vota og ískalda fætur, þegar
dimt var orðið, kvöldið fyrir Þorláksmessu. — Lýsislamparnir lýstu
upp hvern krók og kima niðri, því vinnukonurnar vóru í óða og
önn að gera alt hreint og mamma var að steikja kleinur. — Hún
skipaði okkur að fara upp í rúm og láta okkur hlýna, þangað til
kveikt yrði. — Það var ekki timabært að kveikja á olíulampanum.
Þetta var nú auma straffið, að fá ekki sokka og vera niðri hjá
mömmu. — En hún Gunna mín, eins og við kölluðum, lágvöxnu,
góðu vinnukonuna, var látin vera hjá okkur. — Hún kunni svo
óteljandi fallegar sögur og kvæði, sem altaf var gaman að heyra. —
Eftir að hafa hlúð sem best að köldum barnafótum, byrjaði hún
að kenna okkur: Nú fara í hönd þau fallegu jól o. s. frv.
Aldrei gleymi jeg hvað lýsti fyrir hugskotssjónum barnssálar
minnar. Virkilega meðtók hún þá fyrstu geislana frá jólaljósinu
eilíf: Drotni Jesú Kristi. — Á liðnum áratugum síðan, hefur það
sama ljós verið öllum ljósum dýrðlegra í huga mínum, ljósið, sem
hún Gunna mín tendraði kvöldið fyrir Þorláksmessu í litlu bað-
stofunni. —
Ekki má jeg gleyma, að mamma mín kom með ágætar, heitar
kleinur, meðan á lærdómnum stóð.
S. G. Steinunn Guðmundsdóttir, Skriðnesenni, Strandasýslu.