Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 196
194
Hlín
aftur til máls: „Ef þjer ekki segið mjer, hvað því veldur,
þá segi jeg skilið við yður.“ Þá svaraði konungur: „Jeg
skal þá ekki dylja þig þess. Djöfullinn er óvinur minn og
alls mannkyns og ver jeg mig því með merki þessu í hvert
skipti, sem hann er nefndur, svo að hann nái engu valdi
yfir mjer eða geri mjer mein.“ Þegar Repróbus hafði
heyrt þetta mælti hann: „Jeg sje þá, að jeg hef villzt á
yður, og að djöfullinn er sterkari en þjer, fyrst þjer hræð-
ist hann. Farið vel! Hjeðan af þjóna jeg Djöflinum."
Repróbus ráfaði nú um víða veröld og spurði hvar-
vetna, hvar herra Djöfull væri með hirð sinni; tókst hon-
um ekki að finna hann. Einu sinni, þegar hann var á ferð
um eyðimörk, sá hann koma á móti sjer riddaraflokk,
voru þeir svartir og ógurlegir. Reið einn á undan, sem
var afskræmislegri og andstyggilegri en allir hinir, hann
reið til móts við Repróbus og spurði hann að nafni og
erindi? Svaraði hann þá: „Nafn mitt er Repróbus og leita
jeg að Djöfli konungi, vildi jeg þjóna honum, ef kostur
væri á.“ Þá svaraði riddarinn: „Jeg er sá, sem þú leitar
að.“ Var Repróbus feginn fundi þeirra og var hann
þegar látinn sverja hollustueið. En er þeir höfðu riðið
saman spölkorn, komu þeir að þjóðvegi nokkrum, og
stóð hjá honum krossmark. Þegar djöfullinn sá kross-
markið, lagði hann á flótta og reið í loftinu yfir þyrni-
runna og hrískjörr og fór á sig geysilangan krók áður
en hann þorði aftur að snúa út á veginn. Varð Repróbus
þá forviða og sagði við Djöfulinn: „Því kom slíkt ofboð
yfir þig, þegar þú sást trjefauskinn. Því flýr þú lafhrædd-
ur og læðist gegnum skóginn, þegar alfaravegurinn ligg-
ur fyrir fótum þjer?“ Djöfullinn var tregur til svars, en
Kristófer kveðst skyldu segja honum upp þjónustu sinni,
ef hann ekki gerði sjer það uppskátt. Þá svaraði Djöfull-
inn loksins: „Jeg hata krossinn: Á slíkan kross var einu
sinni hengdur Kristur nokkur, sem er hinn versti óvinur
minn og leikur oft illa á mig. Legg jeg því á flótta í hvert
skipti, sem jeg sje krossinn og er mjer það ekki sjálfrátt."