Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 173
Hlin
171
Þorpinu í 15 ár. — Það var ósköp hrörleg byggingin í Mó-
landi og lítil rækt í túnblettinum, en gott land og sljett,
svo þetta stóð alt til bóta. — Strax fyrsta sumarið var hafist
handa, byggingin lagfærð og viðbygging góð. — Reistur
góður reykháfur, svo eldavjelarnar báðar nutu sín vel. —
Mótak var alveg á næstu grösum, enda mikil mótekja öll
sumur, einkum það fyrsta. — Það vildi svo vel til að áfast
við býlið var stór heyhlaða, úr torfi, og þar var mórinn
vel varinn og önnur geymsla. — Bærinn Móland var
tyrfður, og var jarðeigandanum það mikið áhugamál að
hafa þakið jafnan í sem bestri umhirðu. — Það er óhætt
að segja, að túnbletturinn komst brátt í ágæta rækt og
gaf af sjer, þegar best ljet, um hálft kýrfóður — þótti gott
kaup, sögðu karlarnir mínir, góðan húsdýraáburð var
hægðarleikur að fá. — Kom það sjer líka vel í garðana,
þar ræktaði jarðeigandinn kartöflur og graslauk, og af
blómum: hvönn og þrílitu fjóluna, lengra varð ekki kom-
ist, vegna fjarveru eigandans tímum saman. — Sumar-
fagurt var í Mólandi bæði til sjós og lands, og allrafeg-
urst síðasta sumarið 1955. — Mjer þótti vænt um að kaup-
endur, sem við tóku, kunnu vel við sig í Mólandi.
H. B.
UM ALDAMÓTIN 1900.
Gamlir siðir.
Ýmsir gamlir siðir hjeldust að mestu óbreyttir hjer á
landi fram til aldamóta 1900, og sumir jafnvel lengur. —
Gaman er að rifja þessa gömlu siði upp, sem svo lengi
lijeldust og lifðu góðu lííi óbreyttir með þjóð vorri.
Atliyglisverðast mun þetta vera viðvíkjandi mataræði
og klæðaburði, og þá ekki síður um vinnubrögðin. — Þó
einnig um útfararsiði. — Alt fram til aldamóta var siður