Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 192
190
Hlin
Brynjólfui- segir: „Við hjónin eignuðnmst 9 börn, vel
gefin og dugleg. — Sjö komust til fullorðinsára og áttu
maka og börn.“ Svo barnabörn Brynjólfs eru 17 og barna-
barnabömin 27, samtals 51 niðji.
„Kona mín var framúrskarandi dugleg og stjórnaði
öllu með ráð og dáð, þó jeg væri fjarverandi tímum sam-
an, því nú stundaði jeg smíðarnar af kappi. — Bað yrði
tafsamt að telja upp þau hús, sem jeg smíðaði eða lag-
færði, til og frá um sýsluna, smíðaði einnig marga báta. —
Jeg smíðaði mjer brátt bát, og brá mjer oft á sjóinn, því
hann þekti jeg frá Enni. — Jeg smíðaði mestöll verkfæri
mín sjálfur, einnig fjöldann allan af verkfærum fyrir
aðra, þóttist fær bæði á trje og járn. — Smiðju hafði jeg
uppfrá hjá gamla bænum og vann þar löngum. — Eitt
fyrsta verk mitt á Ey var að smíða brú yfir Eyjará, því
gamla skólahúsið, sem Arnór sýslumaður bygði á sínum
tíma, var sunnan við ána, en bærinn norðanvið. — Yfir
ána hafði verið gerð göngubrú, því samgöngur voru að
sjálfsögðu miklar á milli bæjanna, en yfir mína brú mátti
fara með hest.“
„Það varð mitt hlutskifti," segir Brynjólfur, „ að standa
fyrir því, þegar gömlu verslunarhúsin í Höfðakaupstað
voru rifin. (Þessi hús voru yfir 100 ára gömul, hefðu
auðvitað átt að fá að standa til minningar). — Brynjólfur
heldur áfram: „Það voru nú plankar og borð í lagi, borð-
in svo bein og sljett, að það mátti smíða beint úr þeim
hrífusköft o. fl. — Svo var þarna ein mikil eldavjel, hana
fjekk jeg, og setti hana upp í húsinu heima, einnig hlaut
jeg nokkuð af timbrinu, en mestalt var það haft í nýju
verslunarhúsin.“
Brynjólfur kaupir gamla skólahúsið árið 1918 fyrir
18.000 kr., frá þeim tíma hefur hann umráð á öllu hús-
inu, ekki fyr. — Innan tíðar, eða um 1930, reistu þau hjón
sjer mikið og vandað steinhús utan við ána, en gamla
húsið var rifið. — í því voru ágætir viðir, sem notaðir
voru í nýja húsið. — Undu þau hjón þar vel hag sínum. —