Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 109
Hlín
107
Garðyrkjuskóli á Norðurlandi.
Það er að vakna brennandi áhugi fyrir því, að koma á
fót garðyrkjuskóla á Norðurlandi. — Umræður hafa verið
og samþyktir gerðar á Alþingi um þetta mál. Áskoranir
koma úr öllum áttum. Vonandi verður þetta merka mál
ekki látið þæfast lengi milli nefnda og stjórna. — Þörfin
er svo brýn.
Gróðrarstöðin á Akureyri þykir sjálfsagður staður fyrir
þennan skóla. Þar var á sínum tíma merkilegur garðyrkju-
skóli, þó í smáum stíl væri, undir stjórn Guðrúnar Þ.
Björnsdóttur frá Veðramóti, sem lauk prófi við Reistad
garðyrkjuskóla í Noregi 1915, og útskrifaði frá sínum
litla skóla margar stúlkur, sem ferðuðust svo um landið
og leiðbeindu á heimilum.* Um skólann segir Jón Rögn-
son, garðyrkjumaður: „Þessi litli vísir að garðyrkjuskóla,
sem við höfðum hjer um árabil undir stjórn Guðrúnar Þ.
Björnsdóttur, gerði ótrúlega mikið gagn og vakti áhuga
fyrir ræktun og fegrun heimilanna út um sveitirnar."
Eitt sumarið (1934) voru þær 8 stúlkurnar, sem ferð-
uðust til og frá um landið og stunduðu garðyrkjuna á
heimilum landsins. Ekki voru þær allar frá skólanum í
Gróðrarstöðinni, sumar bygðu á langri reynslu, sumar
höfðu lært erlendis. Búnaðarfjelag og kvenfjelögin styrktu
þessar ferðir. Konurnar elskuðu „litlu garðyrkjukonurn-
ar“ sínar og hörmuðu það, að starf þeirra lagðist niður
(1940).
Þó Gróðrarstöðin á Akureyri hafi nú um tíma verið í
niðurníðslu, mun duglegur maður, lærður, geta reist hana
úr rúst, svo að hægt verði að koma þar upp vísi að Garð-
yrkjuskóla.
* í Garðyrkjustöðinni á Akureyri jókst garðyrkjukenslan þann-
ig, eftir ósk Sambands norðlenskra kvenna 1917, að 3 nemendur
fengu þar kenslu vorið, sumarið og haustið (1. maí til 1. okt.). Hófst
sú kensla vorið 1917, svo þegar farið var að senda garðyrkjukonurn-
ar út, 1927, voru þegar margar stúlkur tilbúnar til starfa.