Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 71
Hlin
69
in“. — Heldur sýna þeim fram á hættuna, sem fólgin er í
þessu, og ala upp hjá þeim sjálfsvirðingu.
í þriðja lagi vil jeg enn minnast á fordæmið og í sam-
bandi við það nokkur almenn orð, um það að vera móðir.
Það er mikið talað um mæður, sem vinna utan heimilis
nú á dögum, og margar ástæður eru gefnar fyrir því hvers
vegna það sje nauðsynlegt. — Við heyrum að það sje fjár-
hagsleg nauðsyn — laun föðurins hrökkva ekki til. — Við
heyrum líka, að móðurinni leiðist heima og þurfi á til-
breytingu að halda, sem vinna utan heimilis veiti henni.
Jeg vil aðeins segja þetta: í hverju er þessi fjárhagslega
nauðsyn fólgin? — Stundum er að vísu um raunverulega
örbyrgð að ræða, orsökuð af veikindum fyrirvinnu, eða
móðirin er ekkja og verður að vinna fyrir fjölskyldunni.
— Þegar um slíkt er að ræða verður að veita alla mögu-
lega aðstoð. En hver er ástæðan fyrir flestum? — Er hún
ekki það, að kaupa betri föt, nýrri húsgögn, dýr útvarps-
tæki eða segulbandstæki? — Það er gaman að eiga allt
þetta, en er ekki betra að vera án þeirra, ef ekki eru til
peningar fyrir þeim á meðan börnin eru ung, en fyrir
móðurina að fara út til að vinna?
En hvað það snertir að móðurinni leiðist heima, þá vil
jeg spyrja: Hverskonar starf getur hún fengið sjer utan
heimilis, sem hún fengi ekki leið á með tímanum?
Fólk segir oft við mig, að það hljóti að vera erfitt fyrir
mig, með mína mentun, að vera einangruð uppi í sveit.
— Jeg er stundum einmana og þreytt, en jeg myndi ekki
leita mjer vinnu utan heimilis. — Mjer finnst það vera
fult starf að vera eiginkona og móðir. — Til þess að leið-
ast ekki, þá les jeg mikið, og jeg er svo heppin að eiga
mörg sameiginleg áhugamál með eiginmanni mínum, og
get tekið mikinn þátt í störfum hans, og jeg nota hvert
tækifæri, sem gefst, til að fara út með honum á kvöldin,
en að við höfum getað það, eigum við greiðasemi annarra
að þakka, sem taka að sjer að vera hjá börnunum.
Ef við ætlum okkur að giftast og eiga börn, þá verðum