Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 128
126
Hlín
ensen, einn a£ fremstu málfræðingum Dana, eiginlega
snillingur á mörgum sviðum. — Hann var t. d. svo snjall,
að hann heyrði strax hvaðan hver íslendingur var ættað-
ur á landinu. — Svona þekti hann einnig aðrar mállýsk-
ur. — Hann átti kost á því að verða prófessor, en sagði,
að þeir sem vildu sjer eitthvað, gætu komið til Askov. —
Á stjettinni situr lítil stúlka, það er Margarethe, dóttir
Appels-hjónanna, giftist síðar CPO Christiansen, sem var
mikill sögumaður og snillingur í ræðumensku. — Þau
voru lengi kennarar í Askov, en gerðust síðar skólastjóra-
hjón í Grundvigs háskóla í Fredriksborg (Holger
Begtrups skóla). — CPO dó 1952. — Eftir þann tíma hefur
„Pip“ sem allir kölluðu hana, sem þektu, lifað mjög
margbreytilegu lífi, meðal annars verið kennari lýðhá-
skóla í Þýskalandi um skeið. — Ingibjörg, dóttir Schröder-
hjónanna, giftist Jakob Appel, síðar skólastjóra á Askov.
— Hún kendi aðallega heilsufræði og leikfimi, einnig
nokkuð í handavinnu. — En hún hafði nokkuð mikið á
sinni könnu, þar sem hún var húsmóðir á skólabúinu, en
þar voru oft um 300 manns í fæði. — En hún hafði lag á
að skipuleggja starfið og það hafa dætur hennar líka
kunnað.
Charlotte, yngsta dóttir Appelshjónanna, var ekki
fædd, þegar myndin var tekin, giftist á sínum tíma Bo
Rud, biskupssyni í Odense, þau voru lengi kennarar í
Askov, en þegar Handavinnuháskólinn í ICjerteminde
var stofnaður, gerðust þau þar skólastjórar.
Þær systur, Margrathe og Charlotte, hafa unnið mikið
og þarft verk fyrir danskan heimilisiðnað. — Háskólinn í
Kjerteminde hefur notið góðs af hæfileikum Charlotte,
þar reyndist hún snillingur að stjórna. — Margir íslend-
ingar hafa notið góðs af sumarnámsskeiðunum á Eláskól-
anum. — Sá mikli skóli er einnig að nokkru leyti Lýð-
háskóli. — Eins og nærri má geta gátu Danir ekki hugsað
til að sleppa þeirri hugsjón. — Býður þessi skóli því upp
á hvorttveggja, samrýmist vel, og nýtur mikils álits.