Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 81
Hlin
79
byggingu þeirri, sem eftir er að byggja fyrir fyrsta og
annan bekk unglingastigsins, verður sjerstök skólastofa
af venjulegri stærð ætluð fyrir skólasafnið og störf nem-
enda í því.
IV.
Það er trú okkar, að dvöl barna heillar sýslu í 6—7 ár
í samskóla, skapi fjelagslega samhentari kynslóð. — Mun
jafnvel nú mega sjá vott þess. — Þessi þáttur í starfi
stóru heimavistarskólanna er mjög athyglisverður.
íbúar Dalasýslu, ca. tólf hundruð manna hópur, er
dreifður á 170 km. strandlengju og 10—12 dali og dal-
verpi — þeir hafa vissulega þörf fyrir stofnun, er skapar
uppvaxandi kynslóðum eina, samstæða mynd. — Upp-
eldisleg mótun heimilanna fer dvínandi. — í þeim efnum
bíður a. m. k. heimavistarskólanna mikill vandi og vax-
andi. — Er það efni í hugleiðingu út af fyrir sig. — í þessu
sambandi er þess að geta, að enn skortir stórlega á að
vinnuþörf þessara skóla sje metin rjett og eins og hún
raunverulega liggur nú þegar ljóslega fyrir.
í skólum eins og þessum, þar sem um og yfir 50 börn
dvelja samtímis, þurfa að vera heimavistarstjórar og
húsmæður. Heinravistarstjórinn sæi um mötuneyti, hefði
umsjón með öllu viðhaldi húsnæðis og tækjabúnaðar
o. s. frv. Húsmóðirin sæi um heilsugæslu barnanna, veitti
móttöku gestum, skipulegði störf starfsstúlkna og hefði
yfirumsjón matreiðslu og ræstinga.
Reynsla liðinna ára staðfestir, að knýjandi þörf er fyrir
að þessi störf sjeu metin og ráðið fast starfsfólk í sam-
ræmi við það.
Verði í framtíðinni vel að heimavistarskólunum búið
með starfslið, tæki og húsakost, leikur enginn efi á því,
að þeir verða ómetanlegar menningarmiðstöðvar hvers
hjeraðs. — Að því marki ber hiklaust að stefna. — Bók-
nám í anda liðins tíma er gott, það sem það nær. — En
nútíminn, með hraða sínum, tæknitöfrum og flóknari