Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 64
62
Hlín
mikilvægt úti á iandi — að vega barnið reglulega og gefa
ráð varðandi mataræði og almennar ráðleggingar, ef
þörf er á.
Þegar nú barnið er fætt og fyrsta árið liðið, koma árin
fram að skólaaldrinum, erfið fyrir foreldrana, leikaldur-
inn. — Hvílíka þolinmæði og tíma þurfa þeir ekki á að
halda? — En þessi ár gefa líka foreldrunum mikið í aðra
hönd. — Nú byrjar bamið að spyrja um allt milli himins
og jarðar, og grundvöllurinn að þekkingu barnsins er
lagður. Nú ríður á því, að foreldrarnir sjeu jákvæðir í
afstöðu sinni. — Jeg álít, að ef barn er nógu gamalt til að
spyrja spurninga um eitthvert efni, þá sje það nógu
gamalt til að fá svar við spurningu sinni, sem sje sann-
leikanum samkvæmt. — Á þann hátt lærir það um um-
hverfi sitt, hvernig fjöllin verða til, undur vorsins, fyrstu
staðreyndir lífsins — hvaðan lömbin koma og kettlingar
og síðan í eðlilegu áframhaldi börnin. — Það er mjög
mikilvægt, að spurningum sje sint, en ekki vikið til hlið-
ar með hálfsannindum, því að sannleikurinn kemur í
ljós að lokum.
Vilji til þátttöku í störfum hinna fullorðnu er eitt aðal-
einkenni þessa aldursskeiðs, og þá getur nú reynt á þolin-
mæði móðurinnar. — Oft vilja þau öll þrjú hnoða sitt
eigið deig, þegar jeg er að reyna að baka, hvort heldur
kökur eða brauð. — Oft vilja þau öll þrjú hjálpa við að
búa um rúmin eða hjálpa til að hengja upp þvottinn —
og missa þá venjulega eitthvað niður. — Gerum nú ráð
fyrir að við fengjum þau ofan af því að bjóða fram alla
þessa hjálp. — Við gætum verið fljótari með verkin og
skapið betra, en áhugi barnsins síðar hefur beðið hnekki,
tilboði barnsins hafnað, og tækifæri til þess að hrósa
barninu fyrir, hvílíka lijálp það sje fyrir mömmu, er
glatað, ásamt meðfylgjandi gælum við barnið.
Þegar á þessum aldri, þótt ungt sje, verður mótun skap-
gerðar barnsins að hefjast. Það getur byrjað með reglu-
semi á máltíðum og háttatíma. — Mjer virðist það vera