Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Page 128

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Page 128
Tímarit Máls og menningar fjóss voru. En Glúmur hafði um kvöld- ið hnýtt saman hala á öllum nautum í fjósi. Þá gekk Grímur í hvílugólf það, er var hjá sæng þeirra Helga, og setti þar niður fyrir framan það, er hann hafði í hendi, og gekk síðan að sæng- inni og lagði af Helga klæðin. Hann vaknaði við og mælti: „Tókstu á mér, Þórdís, eða hví var svo köld hönd þín?“ „Eigi tók ég á þér,“ sagði hún, „og óvar ert þú. Uggir mig, að til mikils dragi um.“ Og eftir það sofnuðu þau. Þá gekk Grímur að Helga og tók hönd Þórdísar af honum, er hún hafði lagt yfir hann. Grímur mælti: „Vaki þú, Helgi, fullsofið er.“ En síðan lagði Grímur sverðinu á Helga, svo að stóð í gegnum hann. Helgi mælti: „Vaki svein- ar í seti, maður vegur að mér.“ Þá tók Grímur tré það, er hann hafði niður sett, og kastaði. Það kom í skíðahlaðann, og hljóp hann ofan. Nú hlaupa menn upp í skálanum og ætluðu þangað veg- andann hlaupið hafa, er skarkið var að heyra. En Grímur sneri til sömu dyra, sem hann gekk inn. Þá greip maður um Grím miðjan og vóg hann upp á bringu sér, og var það Arnoddur. Hann mælti: „Til þér hingað. Eg held óhappamann- inum.“ Þá mælti Grímur: „Vesæll ertu halds og lát mig lausan. Eg vildi hefna Helga." Þá lét Arnoddur fara aðra höndina um hann og fann, að hann var berfættur og í línklæðum. Lét hann þá Grím lausan og mælti: „Því lét ég laust þar, að ég mundi eigi vita, að betur væri, að ég hefði haldið.“ Þá hljóp Grimur til dyra og komst út, en Þor- kell rekur aftur hurð, en Glúmur slag- brand fyrir, og fara þeir til jarðhúss síns og hafa þar fylgsni.“ í formála sínum að útgáfu Fornrita- félagsins að Gísla sögu telur dr. Björn K. Þórólfsson ljóst, að Gísla saga hafi tekið áhrifum frá Droplaugarsona sögu varðandi framangreinda vígslýsingu, enda eru þessar tvær frásagnir líkar um margt. Rök dr. Björns eru þau, að tvö atriði, sem eru sameiginleg báðum frá- sögnunum, þ. e. vegandi er fáklæddur og vegandi hnýtir saman naut á hölum, séu eðlileg í Droplaugarsona sögu, en óþörf í hinni. Grímur Droplaugarson var fáklæddur, og það bjargaði honum, en engin skýring er gefin á því í Gísla sögu, hvers vegna Gísli fer svo fáklædd- ur til vígs, og var þá þó frost. Drop- laugarsona saga skýrir tilgang þess, að nautin eru bundin saman á hölum, en svo er ekki í Gísla sögu, og reyndar hefði þetta skv. lýsingunni þar jafnt taf- ið Gísla sem eftirleitarmenn hans.4) Dr. Jón Jóhannesson, sem gaf út Austfirð- ingasögur í útgáfu Fornritafélagsins, fellst í formála þess bindis5) á niður- stöðu dr. Björns, en bendir þó á, að i Gísla sögu sé greint frá því, hvers vegna aðaldyr bæjarins voru opnar, en á þessu sé engin skýring gefin í Droplaugarsona sögu. Dr. Jón skýrir þennan galla Drop- laugarsona sögu með klaufalegri notkun forrits. Vakin skal athygli á, að búning- ur Gísla umrædda nótt kann að eiga að sýna forsjálni hans. Auk þess hefðu gestir Gísla síður grunað hann um að vera valdan að víginu, ef einhver þeirra varð var við brottför hans og vissi jafn- framt, að hann var fáklæddur. Fyrir fáum árum tók Th. M. Ander- son eldri athuganir á ýmsum þáttum í Gísla sögu til endurmats, m. a. frásögn- ina af vígi Þorgríms og sambandið við Droplaugarsona sögu. Anderson kemst að þeirri niðurstöðu, að Droplaugarsona saga hafi þegið vígslýsinguna frá Gísla sögu, og eru rök hans þau, að höfundur Droplaugarsona sögu hafi ekki skilið alla þætti frásagnar þeirrar, sem hann þáði, 366
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.