Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 81
Skírnir
Hugleiðingar urn merkingar orða
79
var nefnt viðhorf málnotanda. Der begriffliche Inhalt svarar
til hugtæka þáttarins, en Nebensinn og Gefuhlswert til geð-
tæka þáttarins. Mistök Erdmanns eru ekki fólgin í því, að
hann skilji ekki, í hverju viðhorf málnotanda er fólgið, held-
ur í hinu, að honum er ekki ljóst samhand merkingar við
orð annars vegar og merkingarmið hins vegar.
Auk þeirra kenninga, sem mi hafa verið að nokkru raktar,
eru uppi ýmsar fleiri skoðanir á þessum efnum. Einkum
þykir mér rétt að geta skoðana Stephens Ullmans. Hann hef-
ir einkum sett kenningar sínar um þessi efni fram í bókinni
The Principles of Semantics (Glasgow 1951), en með því að
ég hefi ekki þá bók við höndina, vitna ég til annars rits hans
Words and Their Use (London 1951). Hann ræðir skoðanir
Ogdens og Richards, meðal annars þríhyrning þeirra, og virð-
ist í rauninni ekki telja hann ranga túlkun þeirra fyrirbrigða,
sem um er að ræða, en telur, að málfræðingar geti gert málið
einfaldara til þess að fullnægja þörfum sínum. Hann segir:
Við getum byrjað á að einfalda þessa mynd og laga
hana að þörfum okkar. 1 fyrsta lagi getum við sleppt
merkingarmiðinu algerlega. Sá, sem rannsakar mál, fæst
við orð, ekki hluti, og myndin hefir sýnt, að ekkert beint
samhand er milli þessa tvenns. (Words 32).
Niðurstaða Ullmans er þessi: Meaning will therefore be
defined ... as a reciprocal relationship between the name
and the sense, which enables the one to call up the other“.
(Words 33).
Þessi skilgreining er óþýðanleg, því að Ullman notar orðið
„sense“, sem í rauninni merkir hið sama og „meaning“ (þ. e.
merking), til þess að útskýra hugtakið „meaning“. En með
„sense“ á hann við svipað og hér hefir verið nefnt „hug-
mynd“.
Ég get ekki fallizt á þessar skoðanir. Það er að vísu rétt,
að málfræðing skiptir sú hlið þríhyrningsins, sem liggur milli
orðs (tákns) og merkingar (hugmyndar), mestu, en honum
er einnig nauðsynlegt að gera sér grein fyrir sambandinu
við merkingarmiðið, eins og sýnt hefir verið hér að framan.
Um kenningar amerískra fræðimanna, sem leggja stund á