Skírnir - 01.01.1956, Síða 106
104
Páll S. Árdal
Skírnir
ef málfærslan hefur verið skipuleg og ekki hefur verið dregin
fjöður yfir neinar þær staðreyndir, sem máli skipta. En dóm-
ari í rétti dæmir sakbominginn að jafnaði annaðhvort sýkn-
an eða sekan. Hins vegar er ekki ólíklegt, að siðfræðingurinn
sé talinn hafa að einhverju leyti rétt fyrir sér, þótt ekki sé
hægt að gleypa skoðanir hans allar. Þannig getur siðfræðing-
urinn hreytt lifsviðhorfum manna með því að vekja þá til
umhugsunar um, hvort lífsviðhorf þeirra séu réttlætanleg.
Hann er þó ólíkur áróðursmanninum í þvi, að rök eru eina
vopnið, sem hann hefur til umráða. Á sama hátt veiðir sann-
ur laxveiðimaður ekki í net, þótt hann geti með því móti
banað fleiri löxum.
X. Lokaorð.
Þeir siðfræðingar, sem taka sér fyrir hendur að sýna fram
á, hvemig matsorð hafi merkingu og hvert sé röksamband
gildishugtaka, gætu vel viðurkennt, að þetta sé ekki eina við-
fangsefnið, sem siðfræðingar gætu fengizt við. Þeim er enn
frjálst að reyna að grafast fyrir um það, hvað endanlega gefi
mannlifinu gildi, hverjar réttlætingar gerða okkar séu gildar.
Hitt er svo annað mál, að „málgreinendur“ geta gert tilkall
til þess að hafa leitt í ljós, hvað felst í því að takast slíkt
fyrir hendur. Menn sjá nú, að þeir, sem gera tilkall til að
lýsa „hinu góða“ eins og Moore orðaði það, eru hvorki að
gefa lýsingu á yfirnáttúrlegum vemleika (Plató) né heldur
er nauðsynlegt að telja, að óeðlislægur eiginleiki hljóti að
vera sameiginlegur öllum þeim hlutum, sem gildi hafa í sjálf-
um sér. Er fylgjandi heillastefnunnar segir okkur, að ánægju-
tilfinningin ein sé góð í sjálfri sér, er hann að gefa okkur
„forskrift“. Ef þú vilt vera góður maður, skalt þú stefna að
því að auka ánægjuna í heiminum sem mest. Er menn meta
sannleiksgildi þessa, spyrja þeir sjálfa sig, hvort þeir geti
viljað, að þeir sjálfir og allir aðrir miði líf sitt við þetta tak-
mark. Sumum gæti þá dottið í hug, að þeim sé ómögulegt
að viðurkenna, að okkur beri ekki að halda loforð okkar, ef
augljóst virðist, að meiri ánægja mundi hljótast af því að