Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 132
130
Gunnar Sveinsson
Skírnir
Skúli
Gíslason.
Einnig samdi hann 2 skáldsögur, sem háðar voru prentaðar
1851: Þór'Sur og Ólöf (í Bónda) og BöSvar og Ásta (í Lanz-
tíSindum). Hafa þessar tilraunir hans til leikrita- og skáld-
sagnagerðar hrapallega mistekizt.
Skúli Gislason fæddist að Vesturhópshólum 14. ágúst 1825.
Hann var í Bessastaðaskóla 1844—46, fyrri veturinn sem
óreglulegur nemandi. Síðan var hann 3 vet-
ur í Reykjavíkurskóla, lauk þaðan stúdents-
prófi 1849 og guðfræðiprófi frá Hafnar-
háskóla 1855. Árið eftir vígðist hann til Stóra-Núps, fékk
Breiðabólsstað í Fljótshlíð 1859 og varð prófastur í Rangár-
þingi 1880. Hann andaðist 2. desember 1888.
Ritsmiðar Skúla frá skólaárum hans í Reykjavík, þær sem
varðveitzt hafa, eru örfáar: ein grein í Bræðrablaði, þrjú
kvæði og ein ferðasaga. Auk þess er vitað, að veturinn 1846
—47 hóf hann að rita sögu Islands í blaðið „og fór það svo
snillilega úr hendi, að blað vort má telja þangað skrautlegasta
kafla ævi sinnar,“ segir skólabróðir hans, Jón Þórðarson.1)
Þessi Islandssaga Skúla mun nú vera glötuð. Söguáhugi hans
og feiknarleg aðdáun á fomöldinni kemur og fram í grein-
inni Um för vora upp á Þingvelli.2) Er þetta brennheit hvatn-
ingargrein til skólapilta, að þeir komi saman á Þingvöllum
í júnílok þá um sumarið, er skóla sé lokið. Elann leggur til,
að dvalizt verði þar tvo daga, fluttar ræður og samtalsþættir,
sungin ættjarðarljóð, haldnar glímur og synt í vatninu. Vill
hann, að þetta verði vísir að þjóðhátíð, sem haldin yrði ár-
lega eða annað hvort ár. Greininni lætur Skúli fylgja kvæði,
sem er ort af miklu fjöri og þrungið frelsisanda og umbóta-
áhuga. Um þrettándann 1848 var það tvisvar sungið opin-
berlega við leiksýningar skólapilta. Enn fremur var það
prentað í ÞjóSólfi 2. maí 1851 og er þar talið „ort af ein-
hverjum ungum lslendingi.“ Ekki nægði þó þessi lögeggjun
Skúla til að hrinda deyfð skólapilta, og varð því ekki af Þing-
vallaförinni. Annað kvæði Skúla, Nátturan, hirtist í Bræðra-
1) Bræðrablað, marz 1848, Lbs. 3317, 4to, 164. bls.
2) Sama, 16. apríl 1847, 7.—-10. bls.