Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 137
Skirnir
Islenzkur skólaskáldskapur 1846—1882
135
kvæði úr Smásmíði frá árinu 1843 (1—4).1) Þá kemur kvæð-
ið Kjartanssteinn (5—6), en vafasamt er, að það sé eftir Jón,
þar eð það er eina æskukvæði hans, sem finnst ekki i eigin-
handarriti hans. Kvæðin á 7.—38. bls. (síðast er Hamför)
hefur hann ort á námsárum sínum í lærða skólanum og
auk þess Stöku (39) og kvæðin SöknuS (41) og Sól kemur
sunnan (42). Alls eru þá prentuð í Ljóðmælunum 40 skóla-
ljóð hans. Meðan Jón var i skóla, voru þessi kvæði hans
prentuð: Minni konungs (25) og Minni skólameistarans,Svein-
bjarnar Egilssonar, í Þjóðólfi 4. desember 1849,2) KvœSi sung-
iS eftir gléSileik í Reykjavíkurskóla 20.—22. des. 1849 (26
—27), prentað á lausu blaði, og KveSja skólapilta til dr. H.
Schevings 1. nóvember 1850 (34—35) í Þjóðólfi 15. janúar
1851. Öll voru kvæðin prentuð án höfundarnafns.
Skólakveðskapur Jóns er fremur efnislítill. Hann orti nær
eingöngu ljóðræn smákvæði, Ijúf og þýð að blæ. Sum þeirra
eru fögur, svo sem Skugginn (7) og Til tunglsiris (22—23).
Stundum eru kvæði hans þunglyndisleg, enda átti hann
lengstum við vanheilsu að stríða, en einnig orti hann hnyttn-
ar gamanvísur svo sem Kossuthsvísur.3) Áhrif á kveðskap
Jóns er helzt að finna frá Jónasi Hallgrímssyni. Með skóla-
kvæðum þeirra Jóns og Steingríms Thorsteinssonar eru
greinileg tengsl. Sennilega hefur Jón verið þar veitandinn,
því að bæði var hann 6 árum eldri og hafði ort töluvert,
áður en hann kom í skóla. Jón mun og hafa átt einhvern þátt
í að yrkja Redd-Hannesarrímu með Steingrími.
Jón gerði nokkrar þýðingar á skólaárum sinum bæði í
bundnu og óbundnu máli. Haustið 1849 þýddi hann 2 kvæði
úr FriSþjófssögu eftir Tegnér,3) en hefur tekizt það illa.
Hann sneri lauslega kvæðinu Löngun eftir Ludwig Tieck
(20—21), og söguna Bikarinn eftir sama höfund þýddi hann
„í flýti“ um áramótin 1849—50.4) Matthías Jochumsson segir
1) Tölumar innan sviga tákna bls. í Ljóðmælunum.
2) Bæði minnin eru eftir Jón, að því er hann segir í bréfi til Helga
Hálfdanarsonar, dags. 28. febrúar 1850, Lbs. 508, fol.
3) Lbs. 598, 4to.
4) Lbs. 325, 4to, prentað með Ljóðmælum Jóns, 175.-—99. bls.