Skírnir - 01.01.1956, Síða 141
Skírnir
Islenzkur skólaskáldskapur 1846—1882
139
oddsen1) orðið fyrirmyndin að fyrrnefndu kvæði hans, Yfir
hafið.
Smásöguna HélukerfiS mun Steingrímur hafa samið í skóla.
Hún er ævintýrakennd og ekki merkileg. Ekki er kunnugt
um aðrar tilraunir hans til sagnagerðar.
Úníformsmissirinn, leikur í 2 þáttum eftir Steingrím, er
til í nokkrum handritum í Landsbókasafni og er sennilega
frá skólaárum hans. Þetta á lítið skylt við leikrit og er alger-
lega óleikhæft. Hann samdi aðeins eitt annað leikrit, Ekki er
allt sem sýnist eða Eldhúsdag, sennilega skömmu eftir komu
sína til Kaupmannahafnar 1851. Er það viðvaningslegt að
gerð. Það var ekki á sviði leikrita- eða sagnagerðar, sem
Steingrímur gat sér orðstír, heldur sem ljóðskáld og þýðandi.
1 Lbs. 742 a, 4to er til alllöng skopsaga með hendi Eggerts
Ólafssonar Bríms (1840—93). Nefnist hún Föstuinngangur-
inn 1861 og fjallar um alla nemendur lærða
skólans það ár og alla kennara skólans nema
tvo. Auk þess eru meðal sögupersónanna
nokkrir prestaskólanemar og bæjarbúar. Allt
er þetta fólk nefnt tilbúnum nöfnum, en lyklar yfir þau
fylgja sögunni. Eggert hefur þó ekki kunnað skil á öllum
dulnefnunum, og verður því líklegast að telja, að liann sé
ekki höfundur sögunnar, þótt svo sé talið í handritaskrá
safnsins. Eykur það líkindin til þess, að þetta sé eftirrit, að
sagan endar i miðri setningu og Eggert hefur skrifað þar
aftan við, að eitt blað muni vanta. Saga þessi er fyndin og
skemmtilega rituð, en þó nokkuð langdregin. Stíllinn er að
nokkru leyti stældur eftir fornsögunum. Mannlýsingar eru
gagnorðar og glöggar, t. a. m. er lýsingin á ritara sögunnar.
Eggert Ó. Brím, prýðisgóð (15.—16. bls.). Þarna eru fróðleg-
ar skólalífslýsingar bæði á kennslustundum og tómstunda-
gamni pilta. Er frásögnin mjög hispurslaus, en víða gróf.
Sagan er varla eins manns verk, en ekki verður nú vitað,
hverjir hafa staðið að samningu hennar. Vert er að veita því
athygli, að Matthías Jochumsson, sem var í skólanum þenn-
Föstu-
inngangurinn
1861.
1) Norðurfari II (1849), 30.—31.bls.