Skírnir - 01.01.1956, Page 143
Skírnir
Islenzkur skólaskáldskapur 1846—1882
141
aga- og áhugaleysi hafi verið óven]u-mikið í skólanum um
þessar mundir. Yerður því að líta á efni kvæðisins sem
gaman eitt.
Jens Vigfússon Hjaltalín var fæddur 12. janúar 1842 í
Litla-Langadal á Skógarströnd. Hann var tekinn í lærða skól-
ann 1858 og varð stúdent þaðan 1864. Presta-
skólakandidat varð hann 1866 og vígðist ár-
ið eftir til Skeggjastaða, en fékk lausn frá
prestskap 1873. Hann var settur prestur á
Staðarstað 1874—75, en fékk þá Nesþing og síðan Setberg
1881. Þar þjónaði hann, þar til er hann lét af embætti 1919.
Hann andaðist á Eiði í Eyrarsveit 18. janúar 1930.
f skóla orti Jens gamankvæði eitt, sem nefnist Harma-
grútur rektors.1) Er það að finna í Lbs. 565, 8vo og er þar
5 vísur, en einnig í Lbs. 2098, 4to, þar sem það er 7 vísur
og ber heitið Rektors harmagrátur. Eins og nafnið her með
sér, er kvæðið ræða, sem lögð er Bjama rektor Jónssyni í
munn, þar sem hann ávítar nemendur sína harðlega fyrir
leti og hvers kyns ódygðir. Koma þarna fyrir ýmis sérkenni-
leg orðtök rektors. Þetta er skemmtilegt kvæði með ósvikn-
um og ærslafullum skólapiltabrag. Fjdgja því ýtarlegar skýr-
ingar, og má af þeim ráða, að það sé ort veturinn 1861—62
eða um svipað leyti og kvæði Skúla M. Nordahls, Disciplinin
í Reykjavíkur institúti o. s. frv., sem áður getur, enda em
kvæðin svipuð að anda. Harmagrútur rektors er hið eina
skólakvæði og einasta veraldlega kvæði, sem kunnugt er um,
að sé eftir Jens. í Lbs. 783, 8vo er hins vegar varðveittur
eftir hann sálmakveðskapur.
Matthías Jochumsson var fæddur í Skógum í Þorskafirði
11. nóvember 1835. Hann réðst sem búðarpiltur til kaup-
manns eins í Flatey 1852. Þar áttu þá heima
ýmsir mætir lærdóms- og höfðingsmenn, sem
kostuðu Matthías til námsdvalar í Kaup-
Matthías
Jochumsson.
mannahöfn veturinn 1856—57. Eftir heimkomuna dvaldist
hann í Flatey við nám og störf, þar til er hann settist í
1) 1 Bibliuútgáfunni 1814 (Grútarbiblíunni) er þessi prentvilla: hamia-
grútur fyrir -grátur.