Skírnir - 01.01.1956, Síða 179
Skímir
Bein Páls biskups Jónssonar
177
myndar eins og hvilft fyrir herðarnar. Á þessu svæði voru
leifar 8 brjóstliða í eðlilegri afstöðu hver til annars. Þessi
hvilft fyrir herðarnar hefur trúlega gert það að verkum, að
lengd beinagrindarinnar mældist 4 cm skemmri en útreiknuð
hæð af lengd lærleggs og sköflungs, sem reiknast 167 cm
við lát biskups, en hefur, þegar hann var upp á sitt bezta,
verið um 169 cm.
Þegar holdsleifarnar voru teknar upp, kom hægri ölnin í
ljós djúpt undir hægra upphandleggsbeini. Krumminn vissi
að upphandleggsvöltunni, og úlnliðsendinn var undir hægra
herðablaði. Þetta er óeðlileg lega á ölninni, en hugsazt gæti,
að hún hefði fallið inn undir upparmsbeinið og herðablaðið,
þegar líkið rotnaði, ef t. d. liægri hendi hefði haldið um bag-
alinn ofanverðan, því að efri endi hans lá við hægri öxl. Við
neðri enda bagalshaussins, þ. e. útskorna beinhlutans, voru
vinstra bátsbeinið, vinstri fjórði handarbaksleggur og 5 fing-
urkjúkur, sem liklega eru úr vinstri hendi frekar en þeirri
hægri, þó að erfitt sé að segja um það fyrir víst. Vinstri fyrsti
liandarbaksleggur var klemmdur milli axlarhyrnu og háls
hægra herðablaðs, og vinstri marghyrningur hinn meiri var
undir II. eða III. brjóstlið. Hins vegar voru handarbeinin við
úlnliðsenda vinstri framliandleggsbeinanna úr hægri hendi,
þau sem örugglega verða heimfærð. Loks var endakjúka
vinstri þumalfingurs, ásamt annarri fingurkjúku, utanvert við
hægri hnélið og hægra mánabeinið milli hnjákollanna.
Þessi dreifing litlu handarbeinanna og afstaða þeirra til
framhandleggsbeinanna er sú, að ekki er hægt að hugsa sér
hana af eðlilegum orsökum. Sú upphaflega lega handa og
framhandleggja, er mér finnst bezt geta skýrt legu beinanna
i kistunni, er hún var opnuð, er, að vinstri hönd hafi haldið
um bagalinn rétt neðan við útskoma hausinn. Það hefur þá
verið kreppt í vinstri olnbogalið í um 45° horn. 1 hægri oln-
bogalið hefur verið kreppt í rétt horn, svo að hægri fram-
handleggur hefur legið þvert yfir neðri hluta brjóstgrindar.
Bæði hægri framhandleggsbeinin hafa þá verið tekin upp og
látin skakkt niður aftur, og úlnliðsendi vinstri framhandleggs-
12