Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 182
180
Jón Steffensen
Skímir
á Norðurlöndum á dögum Páls biskups. Og um þann sið hlýt-
ur honum að hafa verið vel kunnugt, því að þar tók hann
biskupsvígslu, auk þess sem hann dvaldist lengi á Bretlands-
eyjum. Það er því tilgáta mín, að steinþróin hafi upphaflega
verið ofan moldar í stöplinum og svo hafi einnig verið um
nokkrar vandaðar trékistur. 1 brunanum 1309 hafa þessar
kistur brunnið og lok steinþróarinnar brotnað, beinaleifunum
í kistunum hefur þá verið safnað saman og þær látnar í stein-
þróna, sem síðan hefur verið jörðuð, enda hvarf þá brátt úr
tízku á Norðurlöndum að hafa sarkofaga uppistandandi i
kirkjum. Sennilega hafa þeir ekki þótt bæta loftið. Það, sem
mælir á móti þessari skoðun, er, að örugg merki eftir bruna
sáust ekki á steinþrónni, en aðgengilegri skýringu hef ég ekki
komið auga á, og verður þá við svo búið að standa..
En við skulum snúa okkur að jarðneskum leifum Páls sjálfs
og þeirri vitneskju, er þær veita um útlit hans.
Eg hef þegar tekið það fram, að Páll var 56 ára að aldri,
er hann dó, og það komi vel heim við áætlaðan aldur af bein-
unum. Um dánarmein hans segir svo í Pálssögu: „Þat sumar
tók sótt ok óhœgindi mikil Páll biskup, þá er hann fór um
Vestfirðingafjórðung, ok komsk hann nauðuliga til Hítardals;
lá hann þar i rekkju náliga fjórar vikur; síðan fór hann heim
með litlum mætti ok kom lieim í Skálaholt þrimr nóttum
fyrir Símonsmessu [o: 28. okt.] ok lagðisk þá þegar í rekkju.
. . . En fyrir Marteinsmessu tók at óhœgjask með verkjum
miklum sótt hans, ok fylgði bæði svefnleysi ok matleysi ok
þótti hann þá einrœnn vera“ (Bs. I, 144). Hann andaðist
29. nóv. 1211. Eins og þessi lýsing ber með sér, er dánar-
meinið einhver sótt, sem hann hefur átt í um 3 mánuði. Þess
er því ekki að vænta, að beinin beri nein merki þessarar
veiki, enda bera þau ekki vott neinna sjúklegra breytinga.
Af Páli er þessi lýsing í sögu hans: „Páll var vænn að áliti,
fagreygr ok fasteygr, hrokkinhárr ok fagrhárr, limaðr vel ok
lítt fœttr, litbjartr ok horundsljóss, meðalmaðr at vexti ok
manna kurteisastr“ (Bs. I, 127).
Samkvæmt áætlun af beinunum hefur hæð Páls verið nær
169 cm, þegar hann var upp á sitt bezta, en á hans dögum